955. spurningaþraut: Nú er spurt um Land þrumudrekans

955. spurningaþraut: Nú er spurt um Land þrumudrekans

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða nýlegu íslensku kvik­mynd er þetta skjá­skot?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Lítið land­lukt ríki í Asíu heitir á sínu eigin tungu­máli Druk Yul sem þýðir Land þrumu­drek­ans. Dreki er reyndar líka á fána rík­is­ins. Hvað köllum við þetta ríki?

2.  Hvaða ár renna um borg­ar­land Reykja­víkur? - utan Esju­svæðis. Nefnið tvær.

3.  Aðal­heiður Bjarn­freðs­dóttir fædd­ist 1921, hún var verka­kona og verka­lýðs­for­kólfur og sat svo á Alþingi 1987-1991. Fyrir hvaða flokk?

4.  Alli­gatorar eru dýr, náskyld ... hvaða dýrum?

5.  Hvað kall­ast hópur af hröfnum sem krunka hver við annan?

6.  Hver er kall­aður faðir sál­grein­ing­ar­innar?

7.  Hversu djúpt er Eystra­saltið að með­al­tali? Er með­al­dýpið 5,3 metrar, 53 metrar, 530 metrar eða 5.300 metrar?

8.  Tenzing Norgay er frægur fyrir að hafa klifið fyrstur manna fjall nokk­urt, reyndar við annan mann, árið 1953. Hvaða fjall var það?

9.  Og hvað hét klif­ur­fé­lagi hans?

10.  Hvað heitir hæsta fjallið í Japan?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir karl­inn sem hér sést með barni sínu?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Bhutan.

2.  Elliðaár og Korpa. Hólmsá telst einnig rétt.

3.  Borg­ara­flokk­inn.

4.  Krókó­dílum.

5.  Hrafna­þing.

6.  Freud.

7.   53 metrar.

8.  Everest.

9.  Hillary.

10.  Fuji.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Skjá­skotið er úr Kona fer í stríð.

Maðurinn heitir Haraldur Ingi. Hann er Þor­leifs­son en það þarf ekki nauð­syn­lega að fylgja.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár