847. spurningaþraut: Hvaða breska nýlenda sneri af braut sjálfstæðis?

847. spurningaþraut: Hvaða breska nýlenda sneri af braut sjálfstæðis?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða ríki átti í all­langan tíma kringum alda­mótin 1900 fán­ann hér að ofan? 

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Bresk nýlenda hóf leið sína til sjálf­stæðis með því að fá stöðu svo­nefnds „dom­inion“ árið 1907. Árið 1934 varð þetta upp­vax­andi ríki hins vegar að gefa sjálf­stjórn sína upp á bát­inn, því það var komið að fótum fram vegna skulda­söfn­unar. Lands­menn leit­uðu þá hælis undir vernd­ar­væng Breta. Árið 1949 varð nið­ur­staðan sú að nýlendan réði ekki við að verða sjálf­stæð og hún var þá sam­einuð annarri breskri nýlendu sem orðin var sjálf­stæð. Hvaða fyrr­ver­andi til­von­andi sjálf­stæða ríki er hér um að ræða?

2.  Hver skrif­aði bók­ina Midnight's Children eða Mið­næt­ur­börn?

3.  Heims­meist­ara­mót karla í fót­bolta hefst í nóv­em­ber. Hver er ástæðan fyrir því að mótið fer að þessu sinni fram í nóv­em­ber og des­em­ber en ekki í júní og júlí eins og ævin­lega hingað til?

4.  Hvaða þjóð mun gera til­raun til að verja heims­meist­ara­titil sinn frá Rúss­landi 2018?

5.  Það hefur aðeins gerst tvisvar að fót­bolta­þjóð hefur tek­ist að verja heims­meist­ara­titil sinn. Síðast gerð­ist það árið 1962. Hvaða þjóð varði þá titil sinn frá því 1958?

6.  Árið 1980 var frum­sýnd í Banda­ríkj­unum hug­ljúf kvik­mynd sem fjall­aði um líf tveggja ung­linga sem verða skip­reika á eyju nokk­urri. Eftir á að hyggja og með hlið­sjón af nafni mynd­ar­innar hefði jafn­vel mátt ætla að hún hafi verið tekin á Íslandi, en svo var ekki. Hún var tekin í Suð­ur­höfum. En hvað hét þá þessi mynd?

7.  Hvaða starfi gegndi Richard Milhous Nixon 1953-1961?

8.  Edda Falak heldur úti Eigin konum og er menntuð í fjár­mála­fræðum. Hún komst þó fyrst í sviðs­ljósið sem íþrótta­maður sem stund­aði ... hvaða grein?

9.   For­eldrar Eddu kynnt­ust á Ítalíu, móðir hennar var íslensk en hvaðan er faðir hennar ætt­aður?

10.  Í einu ríki Evr­ópu­sam­bands­ins er þung­un­ar­rof bannað. Algjör­lega og und­an­tekn­ing­ar­laust. Það er meira að segja bannað þó um sé að ræða þungun vegna sifja­spells eða nauðg­unar. Lög­reglan hefur að vísu ekki reynt að fram­fylgja bann­inu lengi en það er eigi að síður í gildi. Hvaða Evr­ópu­sam­bands­ríki er þetta?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er konan á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Nýfundna­land.

2.  Salman Rushdie.

3.  Af því mótið er haldið í Katar og þar þykir of heitt yfir sum­arið.

4.  Frakkar.

5.  Bras­il­íu­menn.

6.  Blue Lagoon.

7.  Hann var vara­for­seti Banda­ríkj­anna.

8.  Cross Fit.

9.  Frá Líbanon.

10.  Malta.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er fáni Þýska­lands frá 1871-1918.

Á neðri mynd­inni er Eva Braun, síðar í sól­ar­hring Eva Hitler.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár