846. spurningaþraut: Hver er þekktasti Huttinn sem þið þekkið?

Fyrri auka­spurn­ing:

Neðan til á mynd­inni hér að ofan er útlínu­kort af Reykja­vík, eins og sjá má. Ofantil á mynd­ina hef ég hins vegar sett útlínur á heilu ríki og er bæði kortin í nán­ast réttum hlut­föllum. Þetta ríki er sem sé ekki stærra en þetta, bara hluti Reykja­víkur. Hvaða ríki er þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í fyrra setti Hlynur Andr­és­son Íslands­met í til­tek­inni íþrótta­grein í Dresden í Þýska­landi og sló þar með met Kára Steins Karls­sonar sem Kári hafði sett ára­tug fyrr í Berlín. Í hvaða grein var met Hlyns sett?

2. Hún varð frétta­maður hjá Rík­is­út­varp­inu korn­ung að árum en fór þá jafn­framt að gefa út ljóða­bækur. Rúmlega þrí­tug hóf hún að gefa út skáld­sögur en hefur þó áfram gefið út ljóð með reglu­legu milli­billi, nú síð­ast Tímann á leið­inni. Hvað heitir hún?

3.  Hvað heitir odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn Reykja­víkur?

4.  Wu Zetian er eina konan sem hefur gegnt til­teknu emb­ætti í eigin nafni, þótt ýmsar konur hafi vissu­lega ráðið miklu um þetta emb­ætti bak við tjöldin — bæði fyrr og síðar. En hvaða emb­ætti?

5.  Hvað heitir höf­uð­borgin í Sviss?

6.  Hvað nefn­ast héröðin sem eru helstu stjórn­sýslu­ein­ingar í Sviss?

7.  Edda Andr­és­dóttir sjón­varps­kona hefur skrifað nokkrar bækur um ævina og árið 1984 gaf hún til dæmis út bók­ina Á Gljúfra­steini, við­tals­bók við ... ?

8.  Hver teikn­aði ein­hvers konar flug­far­ar­tæki á 15. öld sem svip­aði mest til frum­stæðrar þyrlu?

9.  Í að minnsta kosti tveim Star Wars myndum kemur við sögu frekar ólögu­leg skepna sem lík­ist mest risa­stórum snigli eða klessu af ein­hverju tagi og hneig­ist víst mjög til glæpa. Þetta fyr­ir­bæri er sagt vera af teg­und­inni Hutt, en heitir hvað?

10. Árið 1967 kom út á Íslandi safn tengdra smá­sagna sem nefnd­ist Ástir sam­lyndra hjóna. Sögurnar þóttu nýstár­legar en margir hneyksl­uð­ust á mál­fari og upp­á­komum ýmsum í lífi per­són­anna. Hver var höf­und­ur­inn?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Í bún­ingi hvaða fót­bolta­fé­lags er karl­inn á mynd­inni hér að neðan? — En þar að auki, hvað heitir karl­inn? Þetta er svo létt að ég get ekki gefið heilt lár­við­ar­stig fyrir svarið, en segjum að þið fáið þá við­ar­stig!

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Maraþon-hlaupi.

2.  Steinunn Sig­urð­ar­dóttir.

3.  Hildur Björns­dóttir.

4.  Embætti keis­ara í Kína.

5.  Bern.

6.  Kantónur.

7.  Auði Laxness.

8.  Leonardo da Vinci.

9.  Jabba.

„Jabba the Hutt“ heitir per­sóna þessi á ensku

10.  Guð­bergur Bergsson.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Ríkið á efri mynd­inni er Monaco.

Neðri mynd: Liðið er Barcelona. Karlinn er Johan Cruyff.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár