845. spurningaþraut: Hversu margir hundar eru nú á dögum?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér að ofan má sjá unga konu spreyta sig við stjórn sjón­varps­þáttar árið 1983. Hver er konan?

Og svo fæst skon­rokks­stig ef þið vitið hvað söng­konan í bak­grunn­inum heitir!

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað er kolmunni?

2.  Kol­skeggur var bróðir einnar helstu hetju Íslend­inga­sagn­anna. Hver var hetjan?

3.  En hvað þýðir orðið kol­bítur?

4.  Hvaða ríki í ver­öld­inni flytur inn og notar nærri helm­ing­inn af öllum þeim kolum sem nýtt eru í heim­inum?

5.  Hversu margir hundar eru taldir vera nú á dögum — svona um það bil? Eru hvutt­arnir 9 millj­ónir, 90 millj­ónir, 900 millj­ónir eða 9 millj­arðar?

6.  Árið 1853 hófst grimmi­leg bar­átta um Krím­skaga sem þá til­heyrði rúss­neska keis­ara­dæm­inu. Þrjár þjóðir öttu þá kappi við Rússa. Nefnið að minnsta kosti tvær þeirra! 

7.  Hver dó 5. maí 1821 og önd­uðu þá ýmsir í Frakk­landi léttar, ekki síst innan valda­stétt­ar­innar, en aðrir hörm­uðu and­látið?

8.  Hver er eini mað­ur­inn sem hefur verið bæði rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins og Frétta­blaðs­ins?

9.  Hvað heitir leik­skól­inn sem hefur í ára­tugi verið við Tjörnina í Reykja­vík?

10.  En hvaða hús stendur nán­ast á móti þessum leik­skóla og er iðu­lega í fréttum?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir leik­konan sem hér sést?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Fisk­teg­und.

2.  Gunnar á Hlíð­ar­enda.

3.  Oln­boga­barn eða dug­leys­ingi. Ég gef rétt fyrir hvað­eina sem nálg­ast nógu mikið aðra hvora merk­ing­una.

4.  Kína.

5.  900 millj­ónir.

6.  Bretland, Frakk­land og Tyrkland.

7.  Napóleon.

8.  Ólafur Steph­en­sen.

9.  Tjarn­ar­borg.

10.  Ráð­herra­bú­stað­ur­inn.  

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Edda Andr­és­dóttir. Og í bak­grunn­inum er Stevie Nicks.

Á neðri mynd­inni er Sigrún Edda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Emil Kristjánsson skrifaði
    Reyndar tók Sardinía einnig þátt í Krímstríðinu með hinum þremur.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár