844. spurningaþraut: Tveir óhugnanlegir herrar, og þó kannski þrír eða jafnvel fjórir!

Fyrri auka­spurn­ing:

Í hvaða teikni­mynda­seríu birt­ast per­són­urnar sem hér að ofan sjást?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Karla­deild Víkings í fót­bolta átti á dög­unum í harðri keppni við öfl­ugt útlenskt lið um sæti í svo­nefndri Sam­bands­deild í Evr­ópu­bolt­anum. Víkingur beið að lokum lægri hlut, 2-4 sam­an­lagt. En frá hvaða landi var and­stæð­ing­ur­inn sem sló Víking út?

2.  Neil Gaiman heitir höf­undur einn, marg­verð­laun­aður fyrir fantasíur af ýmsu tagi. Hann er til dæmis höf­undur teikni­mynda­sagna sem nú gera garð­inn frægan á Netflix í formi sjón­varps­s­eríu. Þar segir frá eins konar herra drauma­lands­ins, ef ég skil þetta rétt. Hvað heitir þessi sería?

3.  Brian Epstein dó aðeins 32 ára árið 1967. Hann var frægur umboðs­maður hvaða hljóm­sveitar?

4.  Undir hvaða nafni er Vladimir Ulyanov þekkt­astur?

5.  Egill Skalla­gríms­son á að hafa grafið silf­ur­sjóð sinn mik­inn skömmu áður en hann lést í hárri elli og hefur sjóð­ur­inn aldrei fund­ist. Nálægt hvaða bæ á silfur Egils að hafa verið grafið?

6.  En hvað hafði Egill skömmu áður ætlað sér að gera við silfrið — þótt hann væri bless­un­ar­lega hindr­aður í því?

7.  „Máninn líður, / dauð­inn ríður; sérðu ekki ...“ Sérðu ekki hvað?

8.  Og hver fór með þessa óhugn­an­legu þulu?

9.  Capo Froward heitir syðsti oddi meg­in­lands Suður-Ameríku. Í hvaða landi er Capo Froward (þetta er ekki mis­ritun fyrir Forward)?

10.  Punta Gallinas heitir hins vegar nyrsti oddi sama meg­in­lands. Í hvaða landi skyldi Punta Gallinas vera?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir skipið sem siglir leið sína á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Póllandi.

2.  Sandman.

3.  Bítlanna.

4.  Lenín.

5.  Mosfelli.

6.  Hann hugð­ist dreifa silfr­inu yfir mann­söfnuð á Alþingi til að njóta þess að heyra þing­heim berj­ast um silfrið.

7.  „... hvítan blett / í hnakka mínum.“

8.  Djákninn á Myrká.

9.  Tjíle.

10.  Kólumbíu.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Þær Wilma og Betty komu við sögu í Stein­ald­ar­mönn­unum, Flint­sto­nes á frum­mál­inu.

Á seinni mynd­inni er Gullfoss.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár