843. spurningaþraut: Lengi hefur verið von á spurningu um Sumargleðina!

Fyrri auka­spurn­ing:

Myndin hér að ofan sýnir umslag plötu sem hljóm­sveit ein sendi frá sér fyrir rúmum 50 árum. Albúmið er aug­ljós­lega skop­stæl­ing af innra byrði albúms Bítlanna, Sgt. Pepper's Lonely Hearts Club Band. En hvaða tón­list­ar­maður var prímus mótor hljóm­sveit­ar­innar sem sendi frá þessa plötu með skot­stæl­ing­unni? — Og svo er í boði hippa­stig ef þið vitið hvað þessi plata heitir.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða á fellur til sjávar milli Eyr­ar­bakka og Þor­láks­hafnar?

2.  Hvaða fræga opin­bera stofnun er til húsa á eða rétt við Eyr­ar­bakka?

3.  Hver sagði nýlega af sér sem for­seti ASÍ?

4.  Hnappa­dalur er á mótum tveggja hér­aða á Íslandi, má segja. Hver eru þau? — og nefna þarf bæði rétt til að fá stig.

5.  Sum­ar­gleðin var hópur skemmti­krafta sem fór um landið á sumrin í rúman ára­tug beggja vegna við 1980. Þar komu ýmsir við sögu en hvaða hljóm­sveit var hryggjar­stykkið í gleð­inni?

6.  Daníel, Jóel, Jónas, Amos og Óbadía — hverjir voru þeir?

7.  Hvað heitir sjö­unda stúd­ó­plata Beyoncé sem út kom í lok júlí?

8.  Undir hvaða gælu­nafni er Sverrir Þór Sverr­is­son þekkt­astur?

9.  Hvaða hét aðstoð­ar­for­ingi breska lög­reglu­varð­stjór­ans Morse í róm­uðum ser­íum um þann síð­ar­nefnda, en aðstoð­ar­mað­ur­inn fékk seinna sína eigin sjón­varps­s­eríu þar sem hann leysti erfið saka­mál upp á eigin spýtur?

10.  Í hvaða borg á Englandi áttu þeir að vera við störf, bæði Morse og aðstoð­ar­maður hans?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér má sjá aðal­leikkon­una í sjón­varps­s­eríu íslenskri sem sýnd var fyrr á árinu. Hvað heitir ser­ían?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Ölfusá.

2.  Fang­elsið að Litla-Hrauni.

3.  Drífa Snædal.

4.  Snæ­fells­ness og Mýra. Í nafni umburð­ar­lyndis og friðar millum allra manna gef ég líka rétt að þessu sinni fyrir Borg­ar­fjörð — í seinna til­fell­inu.

5.  Hljóm­sveit Ragnars Bjarna­sonar.

6.  Þeir eru meðal spá­manna Gamla testa­ment­is­ins.

7.  Renaissance.

8.  Sveppi.

9.  Lewis.

10.  Oxford.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá hljóm­sveit­ina The Mothers of Invention sem Frank Zappa hélt úti. Hann er lengst til vinstri á mynd­inni. Platan heitir We're Only In It For The Money.

Á neðri mynd­inni er skjá­skot úr ser­í­unni Svörtu sandar.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár