842. spurningaþraut: Hver var úti á flugvelli og hitti pilta þrjá?

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða kvik­mynd er skjá­skotið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað heitir for­maður Við­reisnar?

2.  Hversu margir voru kross­festir um leið og Jesúa frá Nasaret sam­kvæmt frá­sögn guð­spjalla­manna?

3.  Við hvaða stað á Englandi er 0 gráðu lengd­ar­baug­ur­inn mið­aður? Svarið þarf að vera þokka­lega nákvæmt.

4.  Í hvaða átt snúa alt­ari í kirkjum alla jafna?

5.  Bók­mennta­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs verða afhent í haust eins og venja er. Tveir íslenskir höf­undar eru til­nefndir til verð­laun­anna eins og venja er. Nefnið að minnsta kosti annan þeirra — það dugar til stigs. 

6.  Din­osaurus er alþjóð­legt orð sem notað er um líf­verur sem uppi voru fyrir löngu. En hvað þýðir orðið din­osaurus?

7.  Din­osaurusar dóu út þegar loft­steinn skall til jarðar á skaga einum. Hvaða skagi er það? 

8.  En hvenær gerð­ist það? Hér má muna hvorki meira né minna en 6 millj­ónum ára til eða frá!

9.  Hvaða núlif­andi dýr eru talin skyld­ust din­osaurusum?

10.  Hvað hét söng­konan í Q4U, þeirri góð­kunnu hljóm­sveit? Gælunafn dugir.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér má sjá þrjá íslenska pilta (Halldór Þor­geirs­son, Hans Jóhanns­son, Hrafn Þor­geirs­son) úti á flug­velli fyrir all­nokkrum ára­tugum og með þeim er ... hver?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Þor­gerður Katrín.

2.  Tveir.

3.  Greenwich. London dugar ekki.

4.  Austur.

5.  Steinar Bragi og Elísabet Jök­uls­dóttir. Annað nafnið dugir sem sagt til stigs.

6.  Hræðileg eðla.

7.  Yucatan-skaga í Mexíkó.

8.  Þetta gerð­ist fyrir 66 millj­ónum ára svo rétt er allt frá 60 til 72.

9.  Fuglar.

10.  Ellý.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin er úr kvik­mynd­inni Dancer in the Dark.

Neðri myndin sýnir Neil Arm­strong síðar tungl­fara með þeim Halldóri, Hans og Hrafni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Altari Dómkirkjunnar í Rvk snéri í vestur nú í vikunni þegar ég var viðstaddur jarðaför.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár