849. spurningaþraut: Þrjár spurningar um Bermúda. Er það ekki ... dularfullt?

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða kvik­mynd er þetta skjá­skot?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða dul­ar­fulla svæði er kennt við Bermúda en þar áttu skip og flug­vélar að hverfa í óeðli­lega stórum stíl?

2.  Til hvaða ríkis telst Bermúda?

3.  Í hvaða grein var að minnsta kosti til skamms tíma keppt um svo­nefnda Bermúda­skál?

4.  Hversu mörg eru spilin í venju­legum spila­stokk?

5.  Hvað heitir höf­uð­borg Aust­ur­ríkis?

6.  Í hvaða landi fellur áin Rín til sjávar?

7.  Þann 25. ágúst 1902 setti Sig­hvatur Árnason bóndi í Eyvind­ar­holti í Rang­ár­valla­sýslu og Alþing­is­maður met sem enn stendur. Hvaða met er það?

8.  Hvaða tvö fyr­ir­bæri tengir vél­inda?

9.  Hvað heitir þétt­býl­is­stað­ur­inn við Mývatn?

10.  Hvað hét ótrú­lega sig­ur­sæli fót­bolta­stjóri Manchester United 1986-2013?

***

Seinni auka­spurn­ing:

En úr hvaða bíó­mynd er skjá­skotið hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Bermúda-þrí­hyrn­ing­ur­inn.

2. Bret­lands.

3.  Bridge.

4.  52.

5.  Vín­ar­borg.

6.  Hollands.

7.  Sig­hvatur lét þennan dag af þing­mennsu elstur allra sem setið hafa á þingi, 78 ára og 269 daga. Ekki þarf að hafa töl­urnar réttar, bara giska á að hann sé enn elsti þing­maður sög­unnar.

8.  Kok og maga.

9.  Reykja­hlíð.

10.  Alex Ferguson.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efra skjá­skotið er úr Með allt á hreinu.

Neðra skjá­skotið er úr 2001: A Space Odyssey.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár