Spyr hvort starfsfólk Moggans muni mótmæla eða beita vinnustöðvun

Rit­höf­und­ur­inn Andri Snær Magnason veltir fyrir sér hvort þol­in­mæði starfs­fólks Morg­un­blaðs­ins fyrir rit­stjórn­arp­istlum sem afneita lofts­lags­breyt­ingum sé tak­marka­laus.

Spyr hvort starfsfólk Moggans muni mótmæla eða beita vinnustöðvun
Andri Snær Magnason Rit­höf­und­ur­inn veltir því upp hvort starfs­menn Morg­un­blaðs­ins muni mót­mæla skrifum rit­stjóra þess. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Hvað lætur fag­fólk yfir sig ganga sem vinnur á þessum fjöl­miðli?“ Þannig spyr rit­höf­und­ur­inn Andri Snær Magnason um starfs­fólk Morg­un­blaðs­ins í Facebook-hópnum Fjöl­miðlanördar. Veltir hann því upp hvort starfs­fólk blaðs­ins ræði um að beita vinnu­stöðvun eða mót­mæla með form­legum hætti skrifum rit­stjóra þess þar sem hug­mynd­inni um ham­fara­hlýnun er hafnað.

Tilefnið er rit­stjórn­arp­istill­inn Stak­steinar í Morg­un­blað­inu í dag, en ætla má að þar haldi annar hvor rit­stjóra blaðs­ins, Davíð Oddsson eða Haraldur Johann­es­sen, um penna. Titill pistils­ins er „Álfa­vís­indi“ og er hann að uppi­stöðu til­vitnun í blogg­færslu Páls Vil­hjálms­sonar, kenn­ara við Fjöl­braut­ar­skól­ann í Garðabæ, um það sem höf­undur Stak­steina kallar „lofts­lagstrúna“.

Í pistl­inum sem Stak­steinar vitna í skrifar Páll að með­al­hiti fyrstu 15 daga í júlí hafi verið undir með­al­tali og vísar í önnur skrif þess efnis að lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum séu „ýkju­saga“ eins og hann kallar það. „Ham­fara­spá­mennskan er stór­iðn­aður sem freistar þess að valta yfir þau sann­indi að nátt­úran en ekki mað­ur­inn stjórnar veðr­inu,“ skrifar Páll.

Er þetta þvert á sam­stöðu innan fræða­sam­fé­lags­ins þess efnis að losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda af manna­völdum sé helsta ástæða hlýnun jarðar og þeirra afleið­inga sem hún hefur í för með sér.

„Er þol­in­mæðin tak­marka­laus á meðan heim­ir­inn brennur?“

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem lofts­lags­breyt­ingum af manna­völdum er hafnað í rit­stjórn­arp­istlum blaðs­ins. „Er boð­legt fyrir fag­fólk að vinna undir svona stjórn?“ spyr Andri Snær á Facebook. „Er engin umræða inn­an­húss um að mæta ekki til vinnu og mót­mæla þessu form­lega? Er þol­in­mæðin tak­marka­laus á meðan heim­ir­inn brennur?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (9)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PG
    Páll Gestsson skrifaði
    Má ekki Mogginn hafa skoðun ?
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Leggjum Morgunblaðið í eyði !!
    1
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Er það skoðanafrelsi að halda því fram að 2 sinnum 2 séu fimm? Menn verða að átta sig á því að skoðanafrelsi er ekki ótakmarkað. Þeir sem gegna opinberum störfum bera skyldu til að fara rétt með viðurkenndar staðreyndir. Sama gildir um fjölmiðla. Hlýnun loftslagsins að miklu leyti af mannavöldum er almennt viðurkennd staðreynd og sá sem vill efast um hana verður að færa fram rök studd með vísindalegum aðferðum.
    1
  • Það munar ekki um það
    0
  • Kveikjum eld kveikjum eld kátt hann brennur syngja skátarnir víst ha?
    0
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Það á að vera mál og skoðanafrelsi í landinu.þeir sem efast um þetta hafa fullan rétt til þess. Hér var t.d allt gaddfreðið á hálendinu síðasta vetur og vatnsskortur hjá virkjunum þrátt fyrir hamfarbráðnun jökla þannig að fyrirtæki fengu ekki rafmagn og þurftu að stóla á olíu. Eins er verið að nýta þessa umræðu til að skattleggja allt milli himins og jarðar enn frekar en orðið er ánægðir með það kommarnir sem vinna hjá ríkinu örugglega. Samt er ég persónulega mjög hlyntur orkuskiptunum en þeir sem hafa aðrar skoðanir mega hafa þær fyrir mér skil þá að mörgu leiti. Hljóta að geta sannað þetta betur hvað segja t.d hitatölur síðustu 50 ára.
    -1
    • Valur Bjarnason skrifaði
      Talandi um skatta þá ætla framsokn og sjálfstæðisflokkurinn að leggja ómælda skatta á bifreiðaeigendur í formi veggjalda út um allar koppagrudir. Þeir verða ánægðir með það í fjármálaráðuneytinu, sjallarnir!
      0
  • Jóhanna Harðardóttir skrifaði
    Þöggunin um loftslagsvánna er ótrúlega lífseig, og ekki bara hér heldur um allan heim
    1
  • Jónsson Höskuldur skrifaði
    Þeir eru trúir auvaldinu og fasitunum ritstjórarnir á mogganum sem aldrei fyrr .
    Er ekki hagt að skjóta þeim út í geim til að þeir sjai afleðingar aðvaldsins og fasistan á jörðina okkar og allar eiturspuandi verksmijurnar sem mala gull fyrir auvaldið svo þeir geti nú fgerðast um í eikkaþotum sínum sem meinga óskaplega miðað við að kannski ein fjöskilda er um borð .
    Já ,það er ansi lagt lagst til að reina að sanfaera áskrifendur mogganns um að meigun af mannavöldum sé ástaeða hitnunar á jörðini .
    Hvað er þaÐ FYRSTA SEM MAÐUR GERIR EF OF HEITT VARÐUR AF MANNAVÖLDUM Í HÍBÝLUM ÞÍNU ,jÚ ÞÚ LAKAR HITAN OG OPNAR GLUGGA TIL AÐ NÁ JAFNVAGI Á HITANUM .
    Eins er með jörðina ef eingin opnar gluggann hitnar bara meira ,eða hvað.
    Mogginn er í dauðategjunum hvort sem er ,og er ekki bara best að loka sjopuni og loka ritstjórana ínn á kleppi til varnar öðru fólki ,og reina að opna gluggana áður en þáð verður og seint og slökva eldana undir kötlunum sem mala gull fyrir fasistana .
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár