779. spurningaþraut: Hnútar, klám, Trump og Tinni

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Donald Trump heitir maður. Hann er Banda­ríkja­maður og fæddur í Banda­ríkj­unum en for­eldrar hans töl­uðu hvor­ugt ensku að móð­ur­máli. Til hvaða lands rakti faðir hans ættir sínar?

2.  Móðir Trumps var aftur á móti fædd í allt öðru landi en fað­ir­inn. Hvað land var það?

3.  Og hvaða tunga var móð­ur­mál móður Trumps?

4.  Í hvaða landi er Nordkapp eða Norð­ur­höfði?

5.  Hvað hét klauf­sku lög­reglu­menn­irnir tveir í Tinna-bók­unum? Hér er spurt um íslenskar þýð­ingar Tinna-bókanna.

6.  Hvað hét höf­undur Tinna?

7.  Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Tallinn?

8.  Langt aftur í germ­anskri for­tíð okkar er talið að orðið „klám“ sé af rót sem merkir „klístrað“ eða „slímugt“. Á Ísland fékk orðið klám hins vegar aðra merk­ingu áður en farið var að nota það sem sam­heiti fyrir pornó eða klúr­yrði. Hvað var klám á Íslandi hér áður fyrr?

9.  Hver samdi hetjus­in­fón­í­una svo­nefndu?

10.  Hvað er eða var að minnsta kosti mælt í hnútum?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér að neðan má sjá skjá­skot úr kunnri kvik­mynd. Hvað er það sem per­sónan til hægri telur að sé 25 fet að lengd?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Þýska­lands.

2.  Skotlands.

3.  Gelíska — skosk gel­íska, nánar til­tekið, en „skoska“ dugar ekki. Það orð er notað um ensku, en með sterkum skoskum keim og hreim.

4.  Noregi.

5.  Skafti og Skapti.

6.  Hergé.

7.  Eist­landi.

8.  Illa unnið verk, jafn­vel vind­högg.

9.  Beethoven.

10.  Hraði.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er söng- og leik­konan Judy Garland.

Neðri myndin er úr kvik­mynd­inni Jaws og til umræðu er hákarl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár