761. spurningaþraut: Hér er meðal annars spurt um fjórar rosknar konur

Fyrri auka­spurn­ing:

Borð fyrir hvaða leik má sjá hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða fót­boltalið hefur oft­ast unnið Meist­ara­deild Evrópu í fót­bolta karla? (Að með­töldum Evr­ópu­bik­arnum sem var und­an­fari þeirrar keppni.)

2.  Fjórða fjöl­menn­asta borgin í landi einu heitir Dnipro. Í hvaða landi er Dnipro?

3.  Hvaða menntun hefur Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri í Reykja­vík?

4.  Hver skrif­aði skáld­sög­una Granda­vegur 7 fyrir 28 árum?

5.  Hvað heitir skól­inn sem rek­inn er, eða var alt­ént, á vegum kaþ­ólsku kirkj­unnar í Reykja­vík?

6.  Otto Wathne hét norskur útgerð­ar­maður og kaup­maður sem kom undir sig fót­unum á til­teknum stað á Íslandi og kom um leið fót­unum undir stað­inn. Hvaða staður var það?

7.  Hvað heitir hið fræga útlenska hljóm­plötu­fyr­ir­tæki sem Víkingur Heiðar Ólafsson píanó­leik­ari hefur gefið út hjá?

8.  Melanie Brown, Emma Bunton, Geri Halliwell, Melanie Chisholm og ... hver?

9.  Phil nokkur Mickelson er afreks­maður í ... hverju?

10.  Í hvaða heims­álfu er ríkið Djibútí?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Konurnar hér að neðan kepptu í Eurovision fyrir ára­tug en fyrir hvaða land?

Og fyrir sér­stakt Eurovision-stig: Í hvaða sæti lentu þær?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Real Madrid.

2.  Úkraínu.

3.  Hann er læknir.

4.  Vigdís Gríms­dóttir.

5.  Landakot.

6.  Seyð­is­fjörður.

7.  Deutsche Gramm­oph­one.

8.  Victoria Beckham (eða Adams). Þær voru allar í hljóm­sveit­inni Spice Girls.

9.  Golfi.

10.  Afríku.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er skrafl-borð.

Á neðri mynd eru Ömmurnar frá Buranovo sem kepptu fyrir Rússland. Þær lentu í öðru sæti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár