755. spurningaþraut: „Hefur þú enga sómatilfinningu?“

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér að ofan má sjá 18 ára gamla leikkonu í sínu fyrsta kvik­mynda­hlut­verki í mynd­inni Age of Consent frá 1963. Hvað heitir hún?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Árið 1954 var karl einn í Banda­ríkj­unum spurður ein­faldrar spurn­ingar: „Hefur þú enga sóma­til­finn­ingu?“ Hver var spurður?

2.  Hvaða þjóð er ríkj­andi heims­meist­ari í fót­bolta kvenna?

3.  En í fót­bolta karla?

4.  Við hvern er Jónshús í Kaup­manna­höfn kennt? Og lár­við­ar­stig með eik­ar­laufum er í boði fyrir rétt svar við fram­halds­spurn­ing­unni: Við hvaða götu er Jónshús?

5.  Í hvaða haf­svæði fellur árin Tígris?

6.  Hvað heitir stærsta eyjan sem til­heyrir Banda­ríkj­unum?

7.  Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir hefur marg­vís­leg störf að baki. Hún var hins vegar við meist­ara­nám í ákveð­inni grein á árunum 1981-1983 og lauk ekki annarri form­legri menntun eftir það. Hvaða háskóla­grein var þetta?

8.  Jón Sveins­son tók við ákveðnu emb­ætti á Íslandi 1780 og gegndi því til dauða­dags 1803. Hann var annar í röð­inni yfir þá sem gengt hafa emb­ætt­inu hér á landi, en þetta emb­ætti er enn við lýði. Jón Sveins­son var sem sagt ... hvað?

9.  Sofi Oksanen heitir kona ein, finnsk. Hvað fæst hún við í líf­inu?

10.  Vestur í Banda­ríkj­unum bjó hins vegar til skamms tíma kona að nafni Vicky White. Hún dó sem sagt á dög­unum. Við hvað starf­aði hún?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir þessi fiskur?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  McCarthy þing­maður.

2.  Banda­ríkja­menn.

3.  Frakkar.

4.  Jón Sig­urðs­son. En gatan heitir Øster Voldgade.

5.  Persaflóa.

6.  Havaí-eyja, Stóra eyjan.

7.  Sagn­fræði.

8.  Land­læknir.

9.  Ritstörf.

10.  Fanga­vörður. Hún var raunar „corrections officer“ sem þýðir eins konar umsjón­ar­maður með vel­ferð fanga, en fanga­vörður dugar alveg í þessu til­felli.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Leik­konan unga heitir Helen Mirren.

Helen Mirren, um dag­inn

Fisk­ur­inn nefn­ist skötu­selur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár