754. spurningaþraut: Carter, Schliemann og hver?

Fyrri auka­spurn­ing:

Þessar hressu stúlkur kepptu í Eurovision í síð­ustu viku. Fyrir hvaða land?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Gríð­ar­lega vin­sælar teikni­mynda­sögur upp­runnar í Belgíu fjalla um ævin­týri þeirra Spirous og Fantasios. Hvað kall­ast þeir á íslensku?

2.  Í hvaða landi er reggí-tón­listin talin upp­runnin?

3.  Hvaða fugl verpir stærstu og þyngstu eggjum í heimi?

4.  Hversu þung eru þau egg að jafn­aði? Ekki eru gefin nein skekkju­mörk!

5.  Hvar býr sá köttur sem púma kall­ast?

6.  Hvað var það sem Howard Carter og félagar fundu árið 1922?

7.  En hvað var það sem Heinrich Schliemann og félagar fundu hálfri öld fyrr? 

8.  Hvað hét málar­inn Van Gogh að skírn­ar­nafni?

9.  Hver gaf út lagið Golden Years á plötu sinni Station to Station árið 1976?

10.  Sögur herma að þetta lag hafi tón­list­ar­mað­ur­inn ætlað öðrum frægum flytj­anda, en því miður ekki orðið af sam­starfi þeirra.  Sá síð­ar­nefndi dó svo ekki löngu síðar, svo ekk­ert varð úr neinu. Hver var þessi seinni mús­í­k­ant sem átti að fá lagið?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Útlínur hvaða Evr­ópu­ríkis má sjá hér?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Svalur og Valur.

2.  Jamaíka.

3.  Strút­ur­inn.

4.  Eitt og hálft kíló.

5.  Í Ameríkum báðum.

6.  Gröf (múmíu) Tút­ankamons fara­gós.

7.  Tróju­borg.

8.  Vincent.

9.  David Bowie.

10.  Elvis Presley.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Konurnar kepptu fyrir Danmörku.

Og þetta eru útlínur Króatíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár