746. spurningaþraut: Firðir, hljómsveitir og ilmhöfn

746. spurningaþraut: Firðir, hljómsveitir og ilmhöfn

Fyrri auka­spurn­ing:

Þetta er ein vin­sælasta söng­kona heims­ins um þessar mundir. Hún ber ætt­ar­nöfnin Mebarak Ripoll en er kunn undir skírn­ar­nafni sínu. Og það er ...?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða jóla­sveinn kemur næst­fyrstur til byggða?

2.  Hver var eina konan sem var í hinum upp­runa­lega Fóst­bræðra­hópi í sjón­varp­inu?

3.  Hvaða stór­hýsi er við Hverf­is­götu 19 í Reykja­vík?

4.  Hvað heitir bók­náms­fram­halds­skól­inn í Hafn­ar­firði?

5.  Í hvaða haf fellur Dóná?

6.  Nafn hafn­ar­borgar einnar þýðir Ilmhöfn. Ekki er ljóst hvort „ilm­ur­inn“ var hressandi sjáv­ar­lykt sem barst þeim sem komu siglandi niður fljót að mynni þess, eða hvort merk­ingin vísar til reyk­els­is­verk­smiðja sem þar voru stað­settar eftir að byggð fór að vaxa. En undir hvaða nafni er Ilmhöfn þekkt um víða ver­öld?

7.  Hvaða heita bræð­urnir sem voru til skamms tíma meðal með­lima hljóm­sveit­ar­innar Retro Stefson? Skírn­ar­nöfn þeirra nægja.

8.  Charlie Watts var lengi trommu­leik­ari í heims­þekktri hljóm­sveit. Hvaða hljóm­sveit?

9.  Hvaða kvenna­hljóm­sveit hefur verið rúss­neskum yfir­völdum nokkuð óþægur ljár í þúfu síð­asta ára­tug­inn?

10.  Á Vest­fjörðum snýr fjöldi fjarða í vestur í átt að Græn­landi. Þar á meðal eru þessir — í staf­rófs­röð — Arn­ar­fjörður, Súg­anda­fjörður, Tálkna­fjörður, Önund­ar­fjörður. Raðið þeim upp í rétta röð frá norðri til suð­urs. Hafa verður allt rétt til að fá stig.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þetta eru húsin númer 96 og 98 við St.Mark's Place á Man­hattan í New York. Þessi hús prýddu plötu­umslag hjá frægri hljóm­sveit árið 1975. Hvaða hljóm­sveit var það?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Giljagaur.

2.  Helga Braga.

3.  Þjóð­leik­húsið.

4.  Flens­borg.

5.  Svarta­haf.

6.  Hong Kong.

7.  Unn­steinn og Logi Pedro.

8.  Rolling Stones.

9.  Pussy Riot.

10.  Súg­anda­fjörður, Önund­ar­fjörður, Arn­ar­fjörður, Tálkna­fjörður.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Söng­konan er Shakira.

Hljóm­sveitin er Led Zeppelin. Hér má sjá umslag plöt­unnar Physical Graffiti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár