„Fjármálamarkaðnum virðist því miður ekki vera treystandi“

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir að sér­fræð­ingar sem stjórn­völd treystu fyrir sölu rík­is­ins á hlutum sínum í Íslands­banki hafi brugð­ist. Hann seg­ist treysta fjár­mála­ráð­herra, Bjarna Bendikts­syni, en ekki Banka­sýslu rík­is­ins. „Ég treysti Bjarna Bene­dikts­syni,“ sagði hann.

„Fjármálamarkaðnum virðist því miður ekki vera treystandi“
Traust Fullt trausti virð­ist vera á milli Sigurðar Inga og Bjarna. Það traust nær þó ekki til Banka­sýsl­unnar, sem heyrir undir þann síð­ar­nefnda. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég treysti Bjarna Bene­dikts­syni,“ sagði Sigurður Ingi Jóhanns­son, inn­við­a­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, á þingi í morgun þar sem hann lýsti yfir trausti á fjár­mála­ráð­herra og for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins en van­trausti á Banka­sýslu rík­is­ins, sem heyrir undir ráð­herr­ann. 

„Ég starfa með honum í rík­is­stjórn og treysti honum til þess. Við erum hins vegar búin að taka ákvörðun um að stöðva sölu­ferlið vegna þess að ég treysti ekki Banka­sýsl­unni, ég treysti henni ekki eftir það sem á undan er gengið,“ sagði hann. Í fyr­ir­spurna­tím­anum sagð­ist hann svekktur yfir hvernig hefði farið. 

Sigurður Ingi sagði engum, hvorki á þing­inu eða í rík­is­stjórn, hefði dottið í hug að setja lág­mark í útboð­inu. „Mér var ekki ljóst — ég held að engum þing­manni hafi verið ljóst að það yrðu ein­hverjir sem gætu keypt fyrir milljón eða tíu millj­ónir eða eitt­hvað slíkt,“ sagði ráð­herr­ann í fyr­ir­spurna­tím­anum.

„Lærdómur okkar sem erum í póli­tík er ein­fald­lega sá að fjár­mála­mark­aðnum virð­ist því miður ekki vera treystandi“
Sigurður Ingi Jóhanns­son
inn­við­a­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins

Margir þing­menn nýttu fyr­ir­spurna­tím­ann til að spyrja Sigurð Inga út í málið en ekk­ert hafði heyrst frá honum um það síðan for­menn stjórn­ar­flokk­anna sendu til­kynn­ingu um að leggja ætti Banka­sýsl­una niður, vegna söl­unnar. Sigurður Ingi lýsti þeirri skoðun sinni á þing­inu að stofn­unin hefði klúðrað mál­inu. 

„Enginn benti á að það hefði verið skyn­sam­legt að setja lág­mark um það hversu hátt eða lágt þessir svoköll­uðu fag­fjár­festar ættu að geta keypt fyrir. Það setti eng­inn hug­myndir um slík skil­yrði, að það þyrftu að vera ein­hvers konar sið­ferði­leg við­mið. Við verðum að setja skil­yrði þannig að það sé ekk­ert svig­rúm til túlk­ana þegar kemur að því að selja. Ég get sagt það líka hér, og kannski verð ég að syndga upp á nokkrar sek­úndur, for­seti, að sér­fræð­ing­arnir sem við treystum finnst mér að hafi brugð­ist,“ sagði ráð­herr­ann á þingi í morgun. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SVB
    Skjöldur Vatnar Björnsson skrifaði
    Var Sigurður Ingi sofandi frá 2008 og fram eftir þessari öldinni? Nei, blekkingarleikur Sigurðar er einfaldur eins og oftast. Stóri glæpurinn er að hafa látið bankaræningjana frá 2008 hafa bankann aftur með afslætti. Árið 2008 stálu þeir peningunum úr bankanum og fóru með þá í skattaskjól. Fimmtán þúsund heimili urðu gjaldþrota og yfir 40.000 manns misstu heimili sín. Komu svo með peningana hingað og eiga nú verslanir og fleira sem fólkið þarf að skipta við. Þetta var mesti fjármálaglæpur íslandssögunnar og Sigurður Ingi segist ekkert muna eftir þessu. Þá á hann að vera undir læknishendi.
    2
  • Jónsson Höskuldur skrifaði
    Þetta mynnir á þegar yfirheira var verið forsetisráherra held ég að hann hafi verið í sambANDI VIÐ OLÍJUMALIÐ Á MIÐNESHEIÐI ÞAR SEM STJORNVÖKLD STUNDUÐ AÐ STELA OLíJU FRÁ HERNUM Á MIÐNESHEIÐI .
    Þá var hastiréttur til húsa í húsinu hanns Tór Jénsens við tjörnina .

    Þegar svo yfirherslur höfðu stað yfir í langan tíma ,spurði furstin frá Akureyri dómaranna hvort þeir vissu hvað vaeru margar endur á tjörnini .

    Þeir dómararnir kömu af fjöllum .en raðherran var með töluna á hreinu enda frasóknarmaður með meiru .

    Síðan fanst einhver götumaður til að bera alla sökina og hann framdi svo sjalfsmorð vegna byrgðana sem hann réði ekki við .
    Og MáLIÐ ÞAR MEÐ LEIST, OG ALDREI UPPLÝST ÞÓ SVO ALLIR VISSU HVER VAR SÖKUDÓLGURINN.
    Svona fór um sjóferð þá og mjög líklegt að íslandbankamalið fari sömu leð og raðherrar sem bera ábyrgð munu vermA RASGATIÐ Á RAÐHERRA STÓLUM ALÞINGIS
    1
  • Siggi Rey skrifaði
    Auðvitað skulu þessar "hetjur" fría sig allri ábyrgð enda ekki vaninn að taka ábyrgð á neinu á þeim bænum. Sökudólgur skal fundinn! Og enn sem komið er, er fjármálamarkaðurinn bestur sem slíkur.
    4
  • Ólafur Jarl skrifaði
    Var þađ fjármálamarkađnum ađ kenna ađ Bjarni Ben fjármálaráđherra klúđrađi bankasölu?
    3
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Enn a lærdómsbekk ? Hugmyndin er að forráðamenn þjóðarinnar sjá vandamálin fyrir en séu ekki endalaust að læra grunnatriði. Auðvitað er engum treystandi þessvegna eru lög og reglur og þau eiga ekki að vera leiðbeinandi og raðleggjandi heldur ófrávíkjanlegar og með viðurlögum ekki eftiraskyringim
    6
  • Siggi Rey skrifaði
    Sækjast sér um líkir Sigurður Svarti!
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu