Lilja segir Bjarna og Katrínu líka hafa efast um Íslandsbankasöluna

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir við­skipta­ráð­herra segir að sam­ráð­herrar hennar í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins hefðu, þau Bjarni Bene­dikts­son og Katrín Jak­obs­dóttir hafi haft efa­semdir um að selja hluti rík­is­ins í lok­uðu útboði.

Lilja segir Bjarna og Katrínu líka hafa efast um Íslandsbankasöluna
Allir með efa­semdir Lilja vakti athygli þegar hún sagð­ist hafa lýst efa­semdum um að selja hluti rík­is­ins í Íslands­banka í lok­uðu útboði við sam­ráð­herra sína í rík­is­stjórn. Mynd: Davíð Þór

„Það voru efa­semdir um þessa aðferð hjá öllum ráð­herrum,“ sagði Lilja Alfreðs­dóttir við­skipta­ráð­herra á Alþingi í morgun um sölu­með­ferð 22,5 pró­senta hlutar rík­is­ins í Íslands­banka. Vísaði hún þar til þess að bæði Bjarni Bene­dikts­son, efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, sem sitja ásamt Lilju í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins hefðu, hafi haft efa­semdir um að selja hluti rík­is­ins í lok­uðu útboði. 

Hún sagð­ist hafa furðað sig á því að ekki hefði verið farin sama leið og þegar opið útboð fór fram á 35 pró­senta hlut rík­is­ins í bank­anum á síð­asta ári. Þá bauðst öllum almenn­ingi að kaupa hlut í opnu ferli. Útboðið nú síð­ast var aftur á móti lokað og aðeins ætlað svoköll­uðum fag­fjár­festum.

„Þá þótti mér und­ar­legt að við skyldum breyta þeirri aðferð vegna þess að hún gekk vel,“ sagði Lilja. Banka­sýslan hafi hins vegar lagt til breytta aðferð, sem allir ráð­herr­arnir hefðu haft efa­semdir um. „Hún gerir það eftir að hafa ráð­fært sig við sér­fræð­inga, bæði inn­lenda og erlenda,“ sagði hún og bætti við síðar: „Það kann að vera að sú aðferð sem Banka­sýslan lagði til, að hún hafi verið rétt.“

Þessi orð fóru ekki vel í þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar sem flykkt­ust í ræðu­stól undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta sem keppt­ust um að furða sig á orðum ráð­herr­ans. „Þeir sáu ekki ástæðu til að upp­lýsa þingið um þessar áhyggjur sínar […] Létu nægja að vara sjálfa sig við án þess að bóka neitt um það,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins. „Vara ein­dregið við því sem þeir gera en halda þing­inu alveg utan við það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Siggi Rey skrifaði
    Lilja Loðhúfa farin að bera í bætifláka fyrir Vellýgna Bjarna og Katrínu. Getiði af hverju?
    0
  • Anna Óskarsdóttir skrifaði
    En eitthvert þeirra kveður uppúr um að fara að ráðum bankasýslunnar þrátt fyirr áhyggjurnar - Hvert þeirra skyldi það nú vera?
    Og svo kemur í ljos að Bankasýslan veldur ekki verkefninu og allar undirstofnanirnar líta svo á að nú sé tækifæri til að reyta hænuna
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu