Kárahnjúkar hefðu getað framleitt inn í orkugatið

Fram­hjá­rennsli Kára­hnjúka­virkj­unar á síð­asta ári nam 1,6 tera­vatts­stund og hefði fram­leiðslan þar getað nýst til að stoppa upp í orkugatið sem mynd­að­ist þegar orku­skorts varð vart. Fimm pró­senta fram­leiðsla þess­arar stærstu virkj­unar Íslands­sög­unnar fer inn á byggða­lín­una.

Kárahnjúkar hefðu getað framleitt inn í orkugatið
Rafmagn flutt að austan Frá fram­kvæmdum Kröflu­línu 3, sem tekin var í gagnið haustið 2021. Mynd: Landsnet

Allt að sjö pró­sent raf­orku sem fram­leidd hefur verið í Fljóts­dals­stöð á Aust­ur­landi hefur farið inn á byggða­lín­una og þannig nýst ann­ars staðar en í álver­inu á Reyð­ar­firði. Í umfjöllun Stund­ar­innar frá 12. mars kom fram að orkan nýtt­ist bara í álverið og gerði Lands­virkjun athuga­semd við það. Í kjöl­farið óskaði Stundin eftir gögnum um hversu mikil orka hefur verið fram­leidd og farið annað en í álverið. 

Á tíma­bil­inu 2014 til 2021 var á bil­inu 2-7 pró­sent af fram­leiddri orku flutt úr Fljóts­dals­stöð inn á byggða­lín­una. Þannig getur raf­magn úr Fljóts­dals­stöð nýst ann­ars­staðar á land­inu þar sem byggða­línan tengir lands­hlut­ana saman. Eftir sem áður er lang­sam­lega stærstur hluti fram­leiddrar orku í Fljóts­dals­stöð fluttur bein­ustu leið á Reyð­ar­fjörð þar sem það er nýtt til fram­leiðslu á áli í verk­smiðju Alcoa. Enda var það til­gangur og mark­mið bygg­ingu Kára­hnjúka­virkj­unar og Fljóts­dals­stöðvar.

Langstærsta raforkuverið

Virkj­unin er sú langstærsta sem hefur nokkru sinni verið reyst og gang­sett á Íslandi. Fjórð­ungur alls raf­magns sem fram­leitt var á síð­asta ári varð til í Fljóts­dals­stöð eða um það bil 4,9 tera­vatt­stundir á ári. Lands­virkjun gerir hins vegar ráð fyrir að bæði orku­fram­leiðsla og orku­flutn­ingur frá Fljóts­dal og í aðra lands­hluti muni aukast á þessu ári. Orku­fram­leiðslan stefnir í 5,2 tera­vatt­stundir, sam­kvæmt mati fyr­ir­tæk­is­ins.

„Þannig hefur mynd­ast meira svig­rúm til að nýta Fljóts­dals­virkjun í þágu raf­orku­kerf­is­ins.“

Áætlanir, miðað við fyrstu tvo mán­uði árs­ins, gerir líka ráð fyrir að 328 mega­vatt­stundir, það er um 6 pró­sent af áætl­aðri fram­leiðslu virkj­un­ar­innar, fari annað en í álverið á Reyð­ar­firði. Það sé hægt vegna auk­innar flutn­ings­getu frá Fljóts­dal út á byggða­lín­una með til­komu Kröflu­línu 3, sem klárað­ist síð­ast­liðið haust. 

„Þannig hefur mynd­ast meira svig­rúm til að nýta Fljóts­dals­virkjun í þágu raf­orku­kerf­is­ins,“ segir Óli Grétar Blöndal Sveins­son, for­stöðu­maður þró­unar vatns­afls hjá Lands­virkjun.

Skert orka annars staðar

Til­gang­ur­inn með að flytja orku á milli staða er að bregð­ast við tak­mörk­unum í orku­fram­leiðslu á ólíkum svæðum. Und­an­farna mán­uði hefur þurft að tak­marka afhend­ingu á orku vegna slæmrar vatns­stöðu í miðl­un­ar­lónum, sér í lagi á Suð­ur­landi. Meiri fram­leiðslu­geta hefur verið á norð­ur­landi en notkun en öfugt er farið á suð­ur­landi. 

Þessi til­færsla á raf­magni úr stærsta raf­orku­veri lands­ins hefur þó hvergi nærri dugað til og hefur Lands­virkjun gripið til þess að skerða orku til þeirra kaup­enda sem hafa samn­inga um kaup á skerð­an­legrar orku. Þetta eru fyrsta og fremst fiski­mjöls­verk­smiðjur en í lok síð­asta árs til­kynnti Lands­virkjun að lang­tíma­samn­ingar við álver og gagna­ver sem gerðu ráð fyrir skerð­an­legrar orku myndu líka þurfa að þola skerð­ingar. 

Kára­hnjúka­virkjun hefur líka ekki getað fram­leitt meira raf­magn og nam fram­hjá­rennsli eða yfir­fall úr miðl­un­ar­lóni virkj­un­ar­innar 1,6 tera­vatts­stund á síð­asta ári. Alla jafna nemur fram­hjá­rennslið upp undir 1,3 tera­vatts­stund á ári, en mest hefur það verið rúmar 2,6 tera­vatts­stundir. 

Flutningskerfinu kennt um

Ástæðan fyrir því að ekki var hægt að nota þessa orku sem rann fram­hjá Kára­hnjúka­virkjun er að sögn Lands­virkj­unar veikt flutn­ings­kerfi. Undir þetta tóku starfs­menn Lands­nets í umfjöllun Stund­ar­innar um flutn­ings­kerfi raf­orku frá því í lok febr­úar. 

„Ef ein­hver virkjun fram­leiðir auka orku er ekki hægt að flytja hana með byggða­lín­unni. Byggða­línan er full­nýtt í dag, það er eng­inn sveigj­an­leiki. Þetta varð mjög opin­bert í sumar, það var lítið af vatni á Suð­ur­landi, lítið í lón­unum þar en á sama tíma var ágætt vatns­magn í til dæmis Blöndu­lóni fyrir norðan og Hálslóni fyrir austan. Það sem gerð­ist var að þegar þau lón fyllt­ust þá rann vatnið bara yfir í þeim, á yfir­falli, án þess að hægt væri að nýta það,“ sagði Sverrir Jan Norð­fjörð, fram­kvæmda­stjóri þró­unar og tækni­s­viðs Lands­nets. 

„Ef byggða­línan hefði meiri flutn­ings­getu þá hefði verið hægt að keyra þessar virkj­anir alveg í botn. Hvað sem fólki finnst um virkj­anir yfir­leitt þá er ansi fúlt að geta ekki nýtt þær að fullu þegar búið er að byggja þær, raska umhverfi, byggja lón og svo fram­vegis. Það heitir bara sóun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Drífa í þessu og leggja í jörð!
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Stend enn við að Kárahnjúkavirkjun voru mikil mistök sem aldrei hafðu átt að gerast. Ráðherra nokkur sagði, að landið sem eyðilagðist
    væri hvort sem er ljótt.
    Mikið af fallegu landi var eyðilagt.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár