Kárahnjúkar hefðu getað framleitt inn í orkugatið

Fram­hjárennsli Kára­hnjúka­virkjunar á síðasta ári nam 1,6 tera­vatts­stund og hefði fram­leiðslan þar getað nýst til að stoppa upp í orkugatið sem myndaðist þegar orku­skorts varð vart. Fimm prósenta fram­leiðsla þessarar stærstu virkjunar Íslands­sögunnar fer inn á byggða­línuna.

Rafmagn flutt að austan
Rafmagn flutt að austan Frá fram­kvæmdum Kröflu­línu 3, sem tekin var í gagnið haustið 2021. Mynd: Landsnet

Allt að sjö prósent raforku sem framleidd hefur verið í Fljótsdalsstöð á Austur­landi hefur farið inn á byggða­línuna og þannig nýst annars staðar en í álverinu á Reyðar­firði. Í umfjöllun Stundarinnar frá 12. mars kom fram að orkan nýttist bara í álverið og gerði Lands­virkjun athugasemd við það. Í kjölfarið óskaði Stundin eftir gögnum um hversu mikil orka hefur verið framleidd og farið annað en í álverið. 

Á tíma­bilinu 2014 til 2021 var á bilinu 2-7 prósent af fram­leiddri orku flutt úr Fljótsdalsstöð inn á byggða­línuna. Þannig getur rafmagn úr Fljótsdalsstöð nýst annarsstaðar á landinu þar sem byggða­línan tengir lands­hlutana saman. Eftir sem áður er langsamlega stærstur hluti fram­leiddrar orku í Fljótsdalsstöð fluttur beinustu leið á Reyðar­fjörð þar sem það er nýtt til fram­leiðslu á áli í verksmiðju Alcoa. Enda var það tilgangur og markmið byggingu Kára­hnjúka­virkjunar og Fljótsdals­stöðvar.

Langstærsta raforkuverið

Virkjunin er sú lang­stærsta sem hefur nokkru sinni verið reyst og gangsett á Íslandi. Fjórðungur alls rafmagns sem framleitt var á síðasta ári varð til í Fljótsdalsstöð eða um það bil 4,9 teravattstundir á ári. Lands­virkjun gerir hins vegar ráð fyrir að bæði orku­framleiðsla og orku­flutningur frá Fljótsdal og í aðra lands­hluti muni aukast á þessu ári. Orku­fram­leiðslan stefnir í 5,2 teravattstundir, samkvæmt mati fyrir­tækisins.

„Þannig hefur mynd­ast meira svig­rúm til að nýta Fljóts­dals­virkjun í þágu raf­orku­kerf­is­ins.“

Áætlanir, miðað við fyrstu tvo mánuði ársins, gerir líka ráð fyrir að 328 mega­vattstundir, það er um 6 prósent af áætlaðri fram­leiðslu virkjunarinnar, fari annað en í álverið á Reyðar­firði. Það sé hægt vegna aukinnar flutnings­getu frá Fljótsdal út á byggða­línuna með tilkomu Kröflu­línu 3, sem kláraðist síðastliðið haust. 

„Þannig hefur myndast meira svigrúm til að nýta Fljótsdals­virkjun í þágu raforku­kerfisins,“ segir Óli Grétar Blöndal Sveinsson, forstöðu­maður þróunar vatnsafls hjá Lands­virkjun.

Skert orka annars staðar

Tilgangurinn með að flytja orku á milli staða er að bregðast við takmörkunum í orku­framleiðslu á ólíkum svæðum. Undan­farna mánuði hefur þurft að takmarka afhendingu á orku vegna slæmrar vatns­stöðu í miðlunar­lónum, sér í lagi á Suður­landi. Meiri framleiðslu­geta hefur verið á norður­landi en notkun en öfugt er farið á suður­landi. 

Þessi tilfærsla á rafmagni úr stærsta raforku­veri landsins hefur þó hvergi nærri dugað til og hefur Lands­virkjun gripið til þess að skerða orku til þeirra kaupenda sem hafa samninga um kaup á skerðanlegrar orku. Þetta eru fyrsta og fremst fiskimjöls­verksmiðjur en í lok síðasta árs tilkynnti Lands­virkjun að langtíma­samningar við álver og gagnaver sem gerðu ráð fyrir skerðanlegrar orku myndu líka þurfa að þola skerðingar. 

Kára­hnjúka­virkjun hefur líka ekki getað framleitt meira rafmagn og nam fram­hjárennsli eða yfirfall úr miðlunar­lóni virkjunarinnar 1,6 teravattsstund á síðasta ári. Alla jafna nemur fram­hjárennslið upp undir 1,3 teravattsstund á ári, en mest hefur það verið rúmar 2,6 teravattsstundir. 

Flutningskerfinu kennt um

Ástæðan fyrir því að ekki var hægt að nota þessa orku sem rann framhjá Kára­hnjúka­virkjun er að sögn Lands­virkjunar veikt flutnings­kerfi. Undir þetta tóku starfs­menn Landsnets í umfjöllun Stundarinnar um flutnings­kerfi raforku frá því í lok febrúar. 

„Ef einhver virkjun fram­leiðir auka orku er ekki hægt að flytja hana með byggða­línunni. Byggða­línan er fullnýtt í dag, það er enginn sveigjanleiki. Þetta varð mjög opinbert í sumar, það var lítið af vatni á Suður­landi, lítið í lónunum þar en á sama tíma var ágætt vatnsmagn í til dæmis Blöndu­lóni fyrir norðan og Hálslóni fyrir austan. Það sem gerðist var að þegar þau lón fylltust þá rann vatnið bara yfir í þeim, á yfirfalli, án þess að hægt væri að nýta það,“ sagði Sverrir Jan Norðfjörð, framkvæmda­stjóri þróunar og tækni­sviðs Landsnets. 

„Ef byggða­línan hefði meiri flutnings­getu þá hefði verið hægt að keyra þessar virkjanir alveg í botn. Hvað sem fólki finnst um virkjanir yfirleitt þá er ansi fúlt að geta ekki nýtt þær að fullu þegar búið er að byggja þær, raska umhverfi, byggja lón og svo framvegis. Það heitir bara sóun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Drífa í þessu og leggja í jörð!
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Stend enn við að Kárahnjúkavirkjun voru mikil mistök sem aldrei hafðu átt að gerast. Ráðherra nokkur sagði, að landið sem eyðilagðist
    væri hvort sem er ljótt.
    Mikið af fallegu landi var eyðilagt.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár