Þeir munu ekki hætta fyrr en þeir ná Úkraínu undir leppstjórn

Leita þarf langt aftur á Sovét­tímann til að finna alvarlegri stöðu í samskiptum Rússlands og Vestur­veldanna að mati Árna Þórs Sigurðs­sonar sendi­herra Íslands í Moskvu. Hann telur að tal Pútíns Rúss­lands­forseta um hugsanlega beitingu kjarna­vopna sé glannaleg ógnun sem gæti fengið aðra í rússnesku stjórn­kerfi til að hugsa sig tvisvar um.

Telur Rússa ætla sér alla Úkraínu
Telur Rússa ætla sér alla Úkraínu Árni Þór Sig­urðs­son sendi­herra í Moskvu telur að Pútín muni ekki hætta fyrr en rúss­neski her­inn hefur tekið alla Úkraínu yfir eða sett yfir landið lepp­stjórn. Enn hefur verið hert á árásum og meðal ann­ars var árás gerð á sjón­varps­turn í Kænu­garði í gær þar sem fimm lét­ust. Myndin að ofan er frá vett­vangi. Mynd: Dimitar DILKOFF / AFP

Árni Þór Sigurðsson, sendi­herra Íslands í Moskvu, segir að staðan í samskiptum Vestur­landa við Rússa nú sé sú alvarlegasta sem komið hafi upp í gríðar­lega langan tíma. Á tímum kalda stríðsins hafi alltaf verið opnar einhverjar samskipta­leiðir, pólitískt og hernaðar­lega, en nú virðist sem svo sé ekki upp á teningunum. „Mér finnst einhvern veginn eins og það sem er að gerast núna sé af annarri stærðar­gráðu og alvarlegra en við höfum séð um mjög langt skeið.“

Árni Þór var staddur hér á landi þegar Stundin ræddi við hann, kom til landsins í síðustu viku og til stóð að hann færi út til Rússlands um liðna helgi en af því varð ekki sökum þess að hann fékk Covid og komst því ekki í flug. Hann var því ekki úti í Rússlandi þegar að innrásin í Úkraínu átti sér stað. „Ég er hins vegar alla daga í samskiptum við mitt fólk í sendi­ráðinu og fylgist vel með rússnesku miðlunum.“

„Almennir Rússar óska sér ekki stríðs­rekstrar“

Spurður hvernig hann meti huga almennings í Rússlandi gagnvart innrásinni í Úkraínu og stríðs­rekstrinum sem nú stendur yfir segir Árni Þór að hann telji að hann sé mjög blendinn. „Eins og við er að búast þá er þarna fólk hliðhollt stjórn­völdum sem fær flestar sínar upplýsingar úr fjöl­miðlum, sem er mestanpart stýrt af rússneskum stjórn­völdum, og þær upplýsingar eru mjög skoðana­myndandi. Aðrir eru andsnúnir stríðs­rekstrinum og við sjáum það á mótmælum sem hafa verið í Moskvu, Péturs­borg og víðar. Ég held að það sé almennari andstaða við stríðs­reksturinn heldur en andstaðan við stjórn­völd er. Almennir Rússar óska sér ekki stríðs­rekstrar.“

Telur hug Rússa blend­innÁrni Þór segir linnu­lít­inn áróður rúss­neskra stjórn­valda gegn Úkraínu hafa haft áhrif. Engu að síður vilji hinn almenni Rússi ekki stríð.

Áróður geisar í fjölmiðlum

Árni Þór nefnir að þær upplýsingar sem birtist í fjöl­miðlum séu mjög skoðana­myndandi enda séu allir stærstu fjöl­miðlar, þar á meðal sjónvarps­stöðvarnar sem hafi afar mikil áhrif, á foræði ríkis­valdsins. Það hafi mjög mikið að segja í áróðurs­stríðinu sem hafi geisað um margra ára skeið og standi enn gegn Úkraínu. Spurður hvort frétta­flutningur sé þá algjör­lega einhlítur segir Árni Þór að aðrir miðlar séu, einkum vefmiðlar, séu til staðar sem séu óháðir. „Það komu í síðustu viku strax skilaboð frá stjórn­völdum um að fjöl­miðlar mættu bara fjalla um stríðs­reksturinn á grund­velli upplýsinga sem þeir fengju frá stjórn­völdum, annars ættu þeir á hættu að þeim yrði lokað. Þá var það líka gefið út að bannað væri að nota orðið stríð um stríðið, það ætti að nota sérstakar hernaðar­aðgerðir (e. Special operations) en ég sé samt að það eru sumar frétta­stofur sem eru óhræddar við að tala um þetta sem stríð og stríðs­rekstur og þeim hefur ekki verið lokað, ekki enn alla vega.“

Í sögulegu tilliti eru Rússar og Úkraínu­menn bræðra­þjóðir sem hafa átt mikið saman að sælda. Árni Þór segir að almennt sé hægt að segja að Rússar líti á Úkraínu­menn sem frændur og vini. Þó hafi linnulítið áróðurs­stríð síðustu ára, alveg frá innlimun Krímskaga árið 2014 og raunar enn fyrr, haft áhrif á þessa afstöðu Rússa. „Þetta eru þjóðir sem eiga sameiginlega sögu í árhundruðir, tala svipað tungumál, báðar slavneskar þjóðir og líta á hvora aðra sem frænd- eða bræðra­þjóðir. En það sem hefur staðið upp úr í umræðu í fjöl­miðlum undan­farin ár um Úkraínu hefur verið mjög neikvætt og það endur­speglast í viðhorfum margra í samfélaginu. Þetta er sem sagt ekki nýr málflutningur. Þessi tónn í Pútín sjálfum upp á síðkastið er kannski heldur groddalegri en verið hefur en sami tónn hefur verið eins og síbylja svo árum skiptir. Fólk heyrir því fátt annað og það eru því ýmsir sem leggja trúnað á þetta. Það er þó ekki einhlítt, það er fullt af fólki sem finnst þetta hrikalegt, á ættingja og vini í Úkraínu og er áhyggju­fullt og skelfingu lostið.“

Viðbrögð við viðskiptaþvingunum gætu orðið tvíbent

Þær viðskipta­þvinganir sem Vestur­löndin hafa ráðist í gegn Rússum munu að mati Árna Þórs bíta en hann er ekki viss um hvaða afleiðingar þær muni hafa á álit almennings og stuðning við Pútín forseta. Aðgerðirnar gætu orðið tvíbentar. „Við sjáum að hlutabréfa­vísitalan hefur fallið, gengi rúblunnar hríð­fellur, stýri­vextir voru hækkaðir í 20 prósent úr 9 prósentum og verðbólguspá seðla­bankans hefur tvöfaldast. Það mun því hafa áhrif á afkomu fólks, klárlega. En viðbrögðin geta verið í báðar áttir. Annars vegar gæti fólk bölvað stríðs­rekstrinum og áhrifum hans í þessa veru og þar með aukist gagnrýni á stjórn­völd. Hins vegar gætu einhverjir tekið hinn pólinn í hæðina og kennt hinum vondu Vestur­löndunum um hvað þau fari illa með Rússa. Svo ég held að viðbrögðin geti verið í báðar áttir.“

„Rússland er efna­hags­lega mun sterkara nú en 2014 þegar Krím­skagi var inn­limaður og inn­við­irnir eru sterk­ari“

En hversu vel er Rússland í stakk búið til að þola lang­varandi efnahagslegar refsiaðgerðir? Árni Þór segir að staða landsins sé betri nú en var fyrir nokkrum árum og það hafi verið unnið að því með mark­vissum hætti að byggja upp efnahag Rússlands. „Gjaldeyris­varaforðinn er orðinn nokkuð öflugur og fram­leiðsla innanlands hefur verið aukin. Rússland er efnahags­lega mun sterkara nú en 2014 þegar Krímskagi var innlimaður og innviðirnir eru sterkari. Hins vegar sýnist mér að aðgerðir í banka­kerfinu séu að frysta allt að helming af gjaldeyris­varaforða Rússlands. Lokunin á SWIFT greiðslu­kerfinu þýðir líka að rússnesk fyrirtæki geta ekki verið í viðskiptum við fyrirtæki á Vestur­löndum og öfugt. Rússar geta því ekki selt sínar vörur og ekki heldur staðið í skilum með það sem þeir kaupa. Dæmi um þetta er að stór hluti flugflota Rússlands eru leigu­vélar, eins og algengt er orðið í flug­rekstri, og nú er verið að innkalla þær, af hálfu eigenda, því Rússar geta ekki staðið í skilum. Þannig að það er ekki bara það að milli­landaflug stoppi hjá þeim, vegna flug­bannsins, heldur hefur þetta líka áhrif á innan­landsflugið með þessu. Þetta mun örugglega valda þeim verulegum erfið­leikum.“

Menningarleg sniðganga mun bíta

Eitt af því sem verið hefur kallað eftir er að Rússland verði menningar­lega snið­gengið. Landinu verði vísað úr íþrótta­keppnum og það jaðarsett í menningar­samskiptum. Þegar hafa alþjóða íþrótta­sambönd og lands­sambönd í ýmsum íþrótta­greinum lýst því yfir að Rússum verði vísað úr keppnum og að lið muni ekki mæta rússneskum liðum. Þá hefur Rússum verið úthýst úr Söngva­keppni evrópskra sjónvarps­stöðva, svo dæmi séu nefnd. Árni Þór er ekki í vafa um að slík sniðganga muni hafa áhrif. „Ég held að það sé nánast óumdeilt að það hefði áhrif á almennings­álitið. Bæði íþróttir og menning skipa mjög veglegan sess í rússnesku þjóð­félagi þannig að það mun tvímæla­laust hafa áhrif. En enn og aftur má minna á að einhverjir muni túlka það sem svo að hin vondu Vestur­lönd séu að koma fram við Rússland af lítilsvirðingu. Þetta hefur samt örugglega áhrif á almenning og íþrótta- og lista­fólkið sjálft sem í hlut á og þeirra málflutningur gæti haft áhrif.“

Skrið­dreka­varnir á sjálf­stæð­is­torgiÚkra­ínskur vara­liðs­maður stendur hér vörð á Sjálf­stæð­is­torg­inu í Kænu­garði.

Árni Þór nefnir hér að framan að til séu þeir Rússar sem muni líta á allar refsiaðgerðir, sniðgöngu og andóf gegn Rúss­landsstjórn sem lítilsvirðingu Vestur­landa. Til eru þeir sem vilja halda því fram að Vestur­lönd hafi á undan­förnum árum rekið Rússa út í horn í alþjóð­legum samskiptum og að menn hafi ekki sést fyrir í þeim efnum. Innrásin í Úkraínu sé þannig meðal annars viðbragð við því. „Ég fylgist talsvert með umræðu fræða­samfélagsins á sviði alþjóða­stjórnmála og þá sér maður röksemdir sem ganga í þessa átt. Rússnesk stjórn­völd hafa haldið því fram að stækkun NATO í austurátt og að landa­mærum Rússlands sé ógn við öryggi landsins. Það er viðhorf sem almenningur í Rússlandi samsvarar sér með og upplifir vissa ógn fyrir vikið. Ef þú setur þig í spor Rússa er hægt að átta sig á því hvað átt er við. En jafnvel þótt að stefna Vestur­landa hefði mögulega mátt vera einhvern veginn öðruvísi þá breytir það ekki því að það sem rússnesk stjórn­völd eru að gera núna er langt út fyrir öll eðlileg viðbrögð við því.“

„Menn í kringum hann hljóti að hugsa sig um tvisvar eða þrisvar yfir þess­ari orð­ræðu“
Árni Þór Sig­urðs­son
um yfir­lýs­ingar Pútíns varð­andi notkun kjarna­vopna

Pútín lýst því yfir á dögunum að sveitir hersins sem eiga að sjá um beitingu kjarnorku­vopna í yrðu settar í viðbragðs­stöðu. Hversu líklegt þykir Árna Þór að forsetinn rússneski sé með því að stíga alvöru skref í átt að beitingu gjör­eyðingar­vopna?

„Á þessu stigi þykir mér það frekar ósennilegt. Ég tel að þetta sé einhvers konar hótun. Stríðs­reksturinn gengur augljós­lega ekki eins og lagt var upp með. Ég tel að þetta hafi verið mjög glannaleg hótun og ekki líklegt að af þessu verði eins og sakir standa. En ég held að þetta hljóti að verða til þess að menn í kringum hann hljóti að hugsa sig um tvisvar eða þrisvar yfir þessari orðræðu. Hvort að þeir hinir sömu muni láta á sér kræla er svo annað mál. Hann hefur auðvitað allsherjar­vald í raun og veru. Spurningin er bara hvort einhverjir úr æðstu lögum stjórn­kerfisins eða í hernum myndu stíga niður fæti. Það er mjög óljóst og ég efast um að það yrði nema um væri að ræða einhver saman­tekin ráð einhvers hóps og ég sé það ekki alveg gerast. Hvað varðar stjórnar­andstöðuna í Rússlandi þá hefur hún alltaf verið mjög tætt. Það eru flokkar í þinginu fyrir utan flokk Pútíns, eins og kommúnista­flokkurinn og öfga hægri­flokkurinn en þeir eru meira og minna sammála Pútín í þessum efnum, og finnst hann jafnvel ekki gera nóg. Svo eru það aðrir andstæðingar stjórn­valda, sem eru ekki með fulltrúa í þinginu, sem eru ekki endilega samstíga í þessum fremur en öðru.“

Rússar munu ekki hætta

Árni er enginn nýgræðingur í málefnum Rússlands. Hann nam hagfræði og rússnesku í Óslóar­háskóla og síðan framhaldsnám í slavneskum málvísindum við Stokk­hólms­háskóla og Moskvu­háskóla á árunum 1986-1988, á tímum Sovét­ríkjanna. Þá var hann frétta­ritari Ríkis­útvarpsins í Moskvu árið 1988. Árni Þór var sendi­herra Íslands í Finnlandi áður en hann tók við sendiherra­stöðu í Moskvu, og fór þá með fyrirsvar fyrir diplómatísk samskipti við Úkraínu. Spurður hvort hann telji að hægt sé að finna dæmi um álíka spennu í samskiptum við Rússland áður segir Árni Þór að til þess þurfi alla vega að leita aftur til tíma Sovét­ríkjanna, og þá mjög langt aftur.

„Ég held að þetta sé einhver alvarlegasta staða sem komið hefur upp í samskiptum Rússlands við Vestur­lönd um mjög langt skeið. Á tímum kalda stríðsins var alltaf eitthvað talsamband. Auðvitað skiptust á skin og skúrir á þeim tíma en það voru samt alltaf opnar einhverjar samskipta­leiðir, bæði á pólitíska sviðinu og hernaðar­lega sviðinu. Mér finnst einhvern veginn eins og það sem er að gerast núna sé af annarri stærðar­gráðu og alvarlegra en við höfum séð um mjög langt skeið. Þetta er mjög alvarleg staða að mínum dómi.“

Spurður hvort hann geti spáð fyrir um hvað gerast muni á næstu dögum og vikum segir Árni Þór það því sem næst ómögulegt. „Hvort viðræður milli Rússa og Úkraínu­mann leiða til einhvers veit maður ekki. Úkraínu­menn eru ekki mjög bjartsýnir á það. Kröfur þeirra eru auðvitað vopnahlé og að Rússar dragi herlið sitt til baka. Miðað við hvað Rússar hafa lagt mikið undir þá sé ég það ekki gerast og maður óttast að Rússar haldi bara áfram. Markmið þeirra sé að ná Úkraínu allri á sitt vald og hætta jafnvel ekki þar. Ég tel það þó varla, ég held að markmið þeirra hafi verið að ná Úkraínu undir lepp­stjórn og þeir muni ekki hætta fyrr en því markmiði hefur verið náð. Það getur tekið lengri tíma en þeir töldu í upphafi og með þeim hörmungum sem slíkur stríðs­rekstur hefur í för með sér, ekki síst fyrir almenning. Mér þykir það hrikaleg tilhugsun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Það er dálítið sérstakt að fylgjast með hinni miklu samstöðu Vesturlanda gegn árás Rússlands á Úkraínu þegar við höfum hliðstætt dæmi sem enginn minnist á, en það eru árásir Ísraels á Palestínu. Hver er munurinn?
    0
  • Sigurður Þórarinsson skrifaði
    Fjölmiðlar hafa ávallt verið notaðir til áróðurs í stríðsátökum... gildir þá einu hvort það er Rússaveldi eða þá einhverjir aðrir sem standa fyrir átökunum:

    https://www. commondreams. org/views/2022/02/28/so-what-it-looks-when-corporate-media-opposes-war
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár