Navalny: „Pútin og þjófar hans eru helsta ógnin sem blasir við Rússum“

Alexei Navalny situr í fanga­búðum í Rúss­landi, enda telur Vladimir Pútin hann hættu­leg­asta and­stæð­ing sinn. Navalny hreifst ekki beint af ræð­unni sem Pútin hélt í rúss­neska sjón­varp­inu í gær­kvöldi þar sem hann rétt­lætti stefnu sína gagn­vart Úkraínu

Navalny: „Pútin og þjófar hans eru helsta ógnin sem blasir við Rússum“
Alexei Navalny var á dög­unum flokk­aður sem hryðju­verka­maður í Rúss­landi, svo Pútin gæti látið dæma hann í 15 ára fang­elsi til við­bótar. En Navalny er hvergi smeykur á Twitter.

Alexei Navalny er helsti stjórn­ar­and­stæð­ing­ur­inn í Rúss­landi um þessar mundir. Það má gagn­rýna Navalny fyrir ýmis orð sín fyrir ára­tug eða svo en ekki er hægt að saka hann um rag­mennsku, því eftir bana­til­ræði — sem aug­ljós­lega var runnið undan rifjum Pútins for­seta — þá sneri Navalny aftur til Rúss­lands frá Þýska­landi, þar sem hann átti þó víst hæli. Og var Navalny umsvifa­laust fang­els­aður eins og ger­ist og gengur í ein­ræð­is­ríkjum.

Navalny var nýlega útskurð­aður hryðju­verka­maður í Rúss­landi og ætl­unin er greini­lega að halda honum í fang­elsi til dauða­dags. Enginn ætti reyndar að láta koma sér á óvart þótt Navalny verði fyrir banaslysi á næst­unni eða and­ist af svip­legum maga­krampa eða ein­hverju þvíum­líku.

En Navalny lætur ekki deigan síga og ein­hvern veg­inn kom hann á fram­færi Twitter-pistli eftir ræðu Pútins í rúss­neska sjón­varp­inu í gær­kvöldi.

Navalny sagði á þann háðska og skor­in­orða hátt sem hann hefur tamið sér:

„Í gær horfði ég á „fund [rúss­neska] örygg­is­ráðs­ins“, þennan söfnuð elli­belgja og þjófa (ég held að Bar­áttu­hópur okkar gegn spill­ingu hafi gert rann­sókn á spill­ing­ar­makki hvers ein­asta þeirra).

Og ég fór að hugsa um sama söfnuð „nómenkla­t­úra“ elli­belgja sem sátu í mið­stjórn sov­éska komm­ún­ista­flokks­ins og ímynd­uðu sér líka upp úr þurru að þeir væru stjórn­vitr­ingar á heim­vísu við „skák­borðið mikla“ og ákváðu að senda sov­éskar her­sveitir inn í Afganistan.

Árang­ur­inn var mann­fall upp á hund­ruð þús­unda, hel­særðar þjóðir og afleið­ingar sem hvorki við né Afganir erum enn búnir að bíta úr nál­inni með, og raunar varð þetta ein helsta ástæðan fyrir hruni Sov­ét­ríkj­anna.

Þessir fáráð­lingar úr mið­stjórn­inni skýldu sér á bak við svikula hug­mynda­fræði. Þessir elli­belgir Pútins hafa ekki einu sinni hug­mynda­fræði — bara stöðugar og blygð­un­ar­lausar lygar. Þeir hafa ekki einu sinni fyrir því að ljá ástæðu sinni fyrir stríð­inu minnsta trú­verð­ug­leika.

Báðir aðilar [komm­ún­ista­flokk­ur­inn og stjórn Pútins] þurfa að dreifa athygli rúss­nesku þjóð­ar­innar frá hinum raun­veru­legu vanda­málum — efna­hags­mál­unum, hækk­andi vöru­verði, vax­andi lög­leysu — og beina athygl­inni í stað­inn að „hinni keis­ara­legu móð­ur­sýki“.

Hve langt er síðan þið horfðuð síð­ast á rúss­neskar sjón­varps­fréttir? Þær eru það eina sem ég horfi á nú um stundir og ég skal segja ykkur það að það ENGAR fréttir frá Rúss­landi, ALLS ENGAR. Allan frétta­tím­ann er aðeins fjallað um Úkraínu - Banda­ríkin - Evrópu.

En ein­tómur áróður dugar ekki lengur fyrir hina elli­æru þjófa. Þeir vilja blóð. Þeir vilja fá að hreyfa leik­fanga­skrið­dreka um stríðskortin.

Því er það sem leið­togi mið­stjórn­ar­innar á 21. öld­inni heldur alveg gjör­sam­lega vit­skerta ræðu. Ég las á Twitter bestu lýs­ing­una á ræð­unni: „Þetta var nákvæm­lega eins og dauða­drukk­inn afi minn sem dettur í það í fjöl­skyldu­boðum og abb­ast upp á alla með útlist­unum sínum á því hvernig er raun­veru­lega í pott­inn búið í alheim­spóli­tík­inni.“

Prófið að taka orðið „Úkraínu“ út úr ræðu hans og setjið „Kasakstan“ í stað­inn eða „Belarús“ eða „Eystra­salts­löndin“ eða „Aserbædjan“ eða „Úsbekistan“ eða jafn­vel „Finnland“. Og reynið að ímynda ykkur hvert hugs­ana­gangur hins elli­æra afa gæti leitt hann næst.

Þetta end­aði skelfi­lega fyrir alla árið 1979. Og þetta mun enda jafn illa núna. Afganistan var eyði­lagt en Sov­ét­ríkin voru líka hel­særð eftir.

Pútin ber ábyrgð á því að hund­ruð Úkra­ínu­manna og Rússa gætu fallið núna og í fram­tíð­inni gæti talan endað í tugum þús­unda. Já, hann mun ekki leyfa Úkraínu að þró­ast að eigin geð­þótta, heldur mun hann draga landið í svaðið, en Rússland mun greiða sama verð.

Við [Rússar] eigum allt sem til þarf til að þró­ast vel á 21. öld­inni. Við höfum olíu og menntað fólk en nú munum aftur tapa stórfé og sólunda sögu­legu tæki­færi til að lifa auð­ugu venju­legu lífi en í stað­inn fá stríð, skít, lygar og höll­ina [Pútins] með gullörn­unum í Gelendzhik.

Pútin og hans elli­æru þjófar úr Örygg­is­ráð­inu og Sam­ein­uðu Rúss­landi eru óvinir Rúss­lands og helsta ógnin sem blasir við [Rússum], ekki Úkraína og ekki Vest­ur­lönd. Pútin drepur og vill drepa fleiri.

Það er Kreml sem gerir þig fátækan, ekki Washington. Það er ekki í London sem sú efna­hags­stefna er ákveðin sem hækkar verðið á súpu­skál elli­líf­eyr­is­þeg­ans um helm­ing, heldur í Moskvu.

Til að berj­ast í þágu Rúss­lands, til að bjarga [Rúss­landi] þarf að koma Pútin og þjófum hans frá völdum. En nú þýðir það líka öllu venju­legri „bar­áttu fyrir friði“.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Magnus Helgi Sigurðsson skrifaði
    Góð greining hjá Navalny á ástandinu og mikið er þetta sorglegt
    0
  • Páll Pálsson skrifaði
    Þetta er því miður allt satt ....sem er skelfilegt....ef það verdur styrjöld þá vona ég ad Rússar geri eins og Argentínu menn eftir Falklandseya stríðið
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
4
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár