Veiga afþakkaði fjórar milljónir: „Ég ætla að standa með náttúrunni“

Veiga Grét­ars­dóttir kajakræð­ari varð lands­þekkt þegar hún leið­rétti kyn sitt og réri rang­sælis í kringum Ísland. Hún er einn af hávær­ari gagn­rýnendum lax­eldis á Vest­fjörðum og hefur birt myndir af afskræmdum eld­is­löxum. Í við­tali við Stundina ræðir hún um nýtt mynd­band sem hún tók undir eld­iskvíum í Dýra­firði, bar­áttu sína gegn lax­eld­inu og hvernig það er að vera gagn­rýnin rödd í litlu sam­fé­lagi fyrir vestan.

<span>Veiga afþakkaði fjórar milljónir:</span> „Ég ætla að standa með náttúrunni“
Veiga og Arctic Fish Veiga Grét­ars­dóttir hefur tekið u-beygju í líf­inu. Henni bauðst styrkur frá Arctic Fish og var beðin um að vera and­lit fyr­ir­tæk­is­ins gegn hárri pen­inga­greiðslu. Veiga sagði hins vegar nei og er einn þekkt­ari gagn­rýn­andi fyrr­tæk­is­ins fyrir vestan. Hér er hún í hús­bílnum sínum sem hún býr í þegar hún ferð­ast um landið. Mynd: Heiða Helgadóttir

Lax­eld­is­fyr­ir­tækið Arctic Fish á Ísafirði bauð kajakræð­ar­anum Veigu Grét­ars­dóttur fjár­styrk upp á um fjórar millj­ónir króna árið 2019 gegn því að hún léki í kynn­ing­ar­efni fyrir fyr­ir­tækið. Þetta segir Veiga, sem er upp­alin og búsett á Ísafirði, í við­tali við Stundina. Hún segir að hug­mynd Arctic Fish hafi verið að taka upp myndir af henni að „róa í kringum" sjó­kvíar á Vest­fjörðum: „Ég átti að verða ein­hvers konar and­lit fyr­ir­tæk­is­ins út á við.“

Veiga afþakk­aði hins vegar styrk­inn og segir hún að það hafi sann­ar­lega verið „erfitt“ að gera það: „Ég tók þá ákvörðun að ég vildi ekki eyrna­merkja mig neinum iðn­aði, sama hvaða fyr­ir­tæki það væri: Fisk­eld­is­fyr­ir­tæki, álvers­fyr­ir­tæki eða ein­hverjar smiðjur, hvað sem er. Það yrði þá bara kajak­fram­leið­andi, fram­leið­andi á úti­vi­starfatn­aði eða -bún­aði. Ég setti bara línu þar.“

Fékk 4 millj­óna til­boðVeiga Grét­ars­dóttir fékk hátt til­boð um aug­lýs­inga­samn­ing frá lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arctic Fish. …
Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁG
    Ása Grímsdóttir skrifaði
    Gott hjá þér Veiga. Stöndum saman. Það má ræða áhrif laxeldis á umhverfið
    1
  • RKS
    Ragnheiður K. Steindórsdóttir skrifaði
    Ég tek ofan fyrir Þér Veiga!
    2
  • Viðar Magnússon skrifaði
    Væri kannski ráð fyrir Stundina að taka viðtal við Sigurð Pétursson svona til að laga hallann á þessu viðtali það er að segja ef Stundinn vill standa undir nafni
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Arctic Fish bauð líka forsetum bæjarstjórna Bolungarvíkur, Ísafjarðarbæjar og Vesturbyggðar atvinnu - sem þeir þáðu!
    3
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Undir efstu myndinni stendur ,,Hún tók við styrk frá Arctic Fish........" Þetta þarf að leiðrétta.
    0
    • Viðar Magnússon skrifaði
      Hún fékk styrk og setti lógó Arctic fish á kajakinn sem hún fór á í kringum landið og var mög þakklát fyrir en það voru aldrei neinar 4 miljónir í umræðunni
      1
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Dásamlegt viðtal við Veigu.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár