Myndband frá Dýrafirði sýnir eldislöxum Arctic Fish skóflað í dýrafóður

Starfs­menn Arctic Fish hafa staðið í ströngu síðustu vikurnar við að hreinsa upp dauðan eldislax úr sjókvíum fyrir­tækisins. Endanlegt umfang laxa­dauðans liggur ekki fyrir eins og er og verður ekki gefið upp, segir Daníel Jakobsson.

Myndir og myndband sem tekin voru á Þingeyri fyrir helgi sýna hvernig dauðum eldis­löxum úr eldis­kvíum Arctic Fish er safnað saman og skóflað í dýrafóður. Starfs­menn Arctic Fish hafa unnið við að hreinsa dauð­fiskinn úr tveimur sjókvíum Arctic Fish síðustu vikurnar. Ástæður laxa­dauðans eru samverk­andi þættir eins og vetrar­kuldinn og veður­farið hér á landi nú í ársbyrjun en þegar kalt geta myndast sár á eldis­fiskunum sem draga þá til dauða. 

Umfang laxa­dauðans er miklu meira en Arctic Fish spáði fyrir um í lok janúar en þá sagði félagið að um væri að ræða um 3 prósent af fram­leiðslu fyrir­tækisins. Nú liggur fyrir að laxa­dauðinn gæti verið allt að tíföld sú tala. Um er að ræða 300 til 400 þúsund eldislaxa í sláturstærð, 5 til 7 kíló hver. 

Dauð­fiski skóflað í dýra­fóðurMynd­bandið sýnir hvernig dauðum eld­is­löxum er skóflað í kara­vís í dýra­fóður. Tvo norsk skip frá fyr­ir­tæk­inu Hordafor hafa verið hér á landi til að vinna og flytja dýra­fóðrið auk þess sem slát­ur­skipið Norwegian Gannet hefur verið hér á landi.

Stundin hefur greint ítrekað frá laxa­dauðanum á Þingeyri síðustu vikurnar.

Endanlegt umfang laxadauðans óljóst

Laxa­dauðinn leiddi til þess að eigandi Arctic Fish, Norway Royal Salmon, sendi frá sér tilkynningu. Ástæðan er sú að fyrir­tækið er skráð á markað í Noregi og þarf að greina frá slíkum upplýsingum um dóttur- og hlutdeildar­félög sín opinber­lega. 

Í tilkynningunni sagði: „Arctic Fish hefur upplifað alvarleg líffræðileg vandamál í tveimur af eldis­stæðum sínum í Dýrafirði, á Íslandi. Umfang laxa­dauðans er til skoðunar en samkvæmt áætlunum mun hann vera 1,5 til 2 þúsund tonn af stórum fiski sem var í sláturstærð og tilbúinn fyrir markaðinn.“ 

Arctic Fish hefur á þessu stigi ekki viljað tjá sig frekar um umfang tjónsins og vísar til þess að fyrir­tækið er skráð á markað. Um þetta sagði Daníel Jakobsson, ráðgjafi í sérverkefnum  og oddviti Sjálfstæðis­flokksins í bæjar­stjórn Ísafjarðar, við Stundina í síðustu viku: „Ég get því miður ekki látið hafa neitt eftir mér um það. Það er vegna þess að við erum skráð á markað og þá þurfa þær upplýsingar að koma jafnt til allra. Við erum tryggð að hluta, það er verið að fara þann hluta og svo er enn óvíst hversu mikið okkur tekst að slátra auk annarra óvissu­þátta. Þær upplýsingar verða tilkynntar þegar að þær liggja fyrir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár