670. spurningaþraut: Þá er komið hér mannkynssögupróf!

670. spurningaþraut: Þá er komið hér mannkynssögupróf!

Þema­þraut, úr því tala þraut­ar­innar endar á núlli. Hér eru því komnar mann­kyns­sögu­spurn­ingar, nokkuð almenns eðlis.

Fyrri auka­spurn­ing:

Rétt eftir að myndin hér að ofan var tekin, hvað gerð­ist þá?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver var for­seti Rúss­lands næstur á undan Vladimír Pútin árið 1999?

2.  Simeon Borisov von Saxe-Coburg-Gotha varð keis­ari í landi einu þegar hann var sex ára en var svo hrak­inn frá völdum aðeins tveim árum síðar. Þá var árið 1946. Árið 2001 sneri hann aftur og varð þá for­sæt­is­ráð­herra í land­inu þar sem hann hafði áður verið keis­ari. Hvaða land er þetta?

3.  Hvað hét fyrsta konan sem varð for­sæt­is­ráð­herra Breta­veldis?

4.  Í þró­uðu vest­rænu lýð­ræð­is­ríki fengu konur ekki kosn­inga­rétt fyrr en árið 1971 eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Hvaða ríki var svo aft­ar­lega á mer­inni í kven­rétt­inda­málum?

5.  Lil­iʻu­oka­l­ani hét drottn­ing í ríki einu en henni var hrundið frá völdum árið 1893 og ríkið varð síðan hluti Banda­ríkj­anna. Í hvaða landi var Lili'uoka­l­ani drottn­ing?

6.  Hver var „stóra Bertha“ sem kom við sögu í fyrri heims­styrj­öld­inni?

7.  Luddítar svo­nefndir voru upp­haf­lega her­skáir vef­arar á Bret­landi á fyrri hluta 19. aldar en nafnið er nú notað almennt yfir þá sem ... ja, sem hvað?

8.  Þjóð­verj­inn Matthias Rust tryggði sér neð­an­máls­grein í mann­kyns­sög­unni árið 1987 þegar hann ... ja, hvað gerði hann?

9.  Hver var höf­uð­borg hinna svo­nefndu Abbasída?

10.  Sagn­fræð­ingar tala stundum um Býsans-ríkið sem eitt af stór­veldum heims­ins öldum saman. Það er nafn sem þeir hafa sjálfir fundið upp til hag­ræð­ingar yfir ríki sem var í raun­inni ... ?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér má sjá feðgin sem bæði urðu æðstu valda­menn í landi sínu. Hvað hétu þau? Hafa verður bæði eft­ir­nöfn þeirra rétt. Lár­við­ar­stig fæst hins vegar ef fólk hefur skírn­ar­nafn föð­ur­ins hár­rétt!

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Jeltsín.

2.  Búlgaría.

3.  Thatcher.

4.  Sviss.

5.  Havaí.

6.  Fall­byssa.

7.  Þá sem eru á móti auk­inni vél­væð­ingu og/eða sjálf­virkni í atvinnu­lífi.

8.  Lenti flug­vél sinni við Rauða torgið í Moskvu.

9.  Bagdad,

10.  Aust­ur­róm­verska ríkið — ríkið sem eftir stóð þegar Róma­veldi í vestri féll.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Fyrri myndin var tekin rétt áður en John F. Kennedy Banda­ríkja­for­seti var myrtur.

Á seinni mynd­inni eru Jawaharlal Nehru og dóttir hans Indira Gandhi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár