671. spurningaþraut: Hvað heitir dóttir Gríms skipstjóra?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir sú þraut sem hér að ofan sést?

Þið fáið svo sér­stakt auka­stig, kennt við Ásmund Helgason, ef þið leysið þraut­ina.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða stríði lauk 30. apríl 1975?

2.  Í hvaða landi er hér­aðið Toskana? 

3.  Skáld­saga ein sem byrj­aði að koma út árið 1913 hefst á setn­ingu sem má þýða svona: „Lengi vel fór ég alltaf snemma í hátt­inn.“ Hver var höf­undur þeirrar sögu?

4.  „Dennis the Menace“ er amer­ískur teikni­mynda­drengur sem kunnur er fyrir hrekkja­brögð og snið­ug­heit. Hann er víst enn við lýði en vel­mekt­ar­dagar hans voru þó á árum 1960-1980 þegar ævin­týri hans birt­ust víða um heim, þar á meðal í íslensku dag­blaði. Einnig voru gerðir sjón­varps­þættir og kvik­myndir um hann. Hvað var Dennis the Menace kall­aður á íslensku?

5.  Í sjón­varps­þátt­unum Ver­búð­inni sner­ist einn þráð­ur­inn um dóttur sem Grímur tog­ara­skip­stjóri hafði eign­ast fram­hjá eig­in­konu sinni en eig­in­konan „rændi“ svo dótt­ur­inni, að segja má. Hvað nefnd­ist dóttirin í sjón­varps­þátt­unum?

6.  En hvað heitir per­sónan sem Guðjón Davíð Karlsson, eða Gói, leikur í þátt­unum?

7.  Hvaða fyr­ir­bæri er and­ar­nefja?

8.  Hver var Banda­ríkja­for­seti á undan Barack Obama?

9.  Hvað heitir all­stór eyja tæpa 600 kíló­metra norður af Íslandi sem til­heyrir Noregi?

10.  Assassin's Creed. Hvað er það?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Víetnam-stríð­inu.

2.  Ítalíu.

3.  Proust.

4.  Denni dæma­lausi.

5.  Sæunn.

6.  Einar.

7.  Hvala­teg­und.

8.  Bush.

9.  Jan Mayen.

10.  Tölvu­leikur.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Þrautin nefn­ist sudoku.

Konan heitir Páley Borg­þórs­dóttir. Þið fáið rétt þótt þið segi Berg­þórs­dóttir en ekki Borgþórs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár