„Þessi ótti upp á líf og dauða var raunverulegur“

Leik­stjór­inn Guð­mundur Arnar Guð­munds­son átti stórt líf sem ung­lingur þar sem slags­málin voru upp á líf og dauða og full­orðna fólkið varð einskis víst. Hann notar drauma sína sem inn­blástur fyrir alda­móta­sögur um unga drengi sem berj­ast við stórar til­finn­ingar. Stundin ræddi við hann um nýj­ustu kvik­mynd hans, Ber­dreymi, á milli ævin­týra á Berl­inale hátíð­inni.

„Þessi ótti upp á líf og dauða var raunverulegur“

Bygg­ing­arnar gnæfa yfir á hinu fram­úr­stefnu­lega torgi, Pots­da­mer Platz í Berlín, þar sem Berl­inale hátíðin fer fram ár hvert. Ég hitti Guðmund Arnar Guð­munds­son leik­stjóra fyrir í sér­út­búnu við­tals­rými á Hyatt hót­el­inu, þar sem stór­leik­arar, bransa­fólk og fjöl­miðla­menn þeys­ast um. Daginn áður var Ber­dreymi, nýjasta mynd hans, frum­sýnd í nálægu kvik­mynda­húsi og með fram­leið­endum í för var leik­ara­hóp­ur­inn, mikið til ung­menni sem voru að stíga sín fyrstu spor í leik­list.

„Krakk­arnir voru að gefa eig­in­hand­ar­á­rit­anir,“ segir Guð­mundur með bros á vör, en ung­lingar hafa alltaf leikið stór hlut­verk í myndum hans og fengið í kjöl­farið að njóta afrakst­urs­ins. „Fólk kom með útprent­aðar myndir af þeim og þau hafa verið að taka af sér „sel­fie“ myndir á meðan þau gefa eig­in­hand­ar­á­ritun.“

Dag­skráin hefur verið stíf og þennan dag er Guð­mundur með röð við­tala á dag­skrá. Mynd hans er eitt af þeim íslensku verkum sem sýnd eru á hátíð­inni og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu