668. spurningaþraut: Hve margir forsetar hafa setið á þingi, og svona eitthvað?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver mál­aði mál­verkið sem sést hluti af hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað heitir höf­uð­borgin í Aserbædjan?

2.  Hver gaf út bókin Die Traum­deutung eða Túlkun drauma árið 1899?

3.  Einn af núlif­andi ridd­urum breska heims­veld­is­ins er Reginald Kenneth Dwight, þótt raunar sé hann kunn­ari undir öðru nafni. Hvaða nafn er það?

4.  Hin tví­tuga Zoi Sadowski-Synnott vann á dög­unum fyrstu gull­verð­laun Ný-Sjá­lend­inga á vetr­ar­ólymp­íu­leikum. En í hvaða grein?

5.  Hvað heitir skurð­ur­inn milli Mið­jarð­ar­hafs og Rauða hafs?

6.  Hvað heitir heiðin sem ekin er milli Reykja­víkur og Hvera­gerðis?

7.  Árið 1874 töldu menn sig verða varir við skrímsli eitt skríða upp úr sjónum þar sem heitir Katanes. Fleiri töldu sig svo sjá skrímslið næstu miss­eri en loks virð­ist það hafa gufað upp. En hvar er þetta Katanes?

8.  Hversu hátt er Everest-fjall, nán­ast upp á metra — 7.850 metrar, 8.350 metrar, 8,850 metrar eða 9.350 metrar?

9.  Í hvaða bíó­mynd eða sjón­varps­þáttum er fjallað um Trapp-fjöl­skyld­una?

10.  Hversu margir af for­setum Islands hafa setið á Alþingi sem þing­menn?

***

Auka­spurn­ing sú hin síð­ari í dag:

Hér að neðan má sjá aðal­leik­ara í leik­sýn­ingu sem nýlega var sett upp í Þjóð­leik­hús­inu. Hvaða leik­rit var um að ræða?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Bakú.

2.  Sigmund Freud.

3.  Sir Elton John.

4.  Snjó­bretti.

5.  Súes­skurður.

6.  Hell­is­heiði.

7.  Í Hval­firði.

8.  8.850 metrar — raunar einum metra lægra.

9.  Tóna­flóði — eða Sound of Music.

10.  Þrír: Sveinn Björns­son, Ásgeir Ásgeirs­son, Ólafur Ragnar Grímsson.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri mynd sýnir hluta mál­verks eftir Van Gogh.

Neðri mynd er úr Rómeó og Júlíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár