667. spurningaþraut: „Whatever happened to the heroes?“

667. spurningaþraut: „Whatever happened to the heroes?“

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  „No More Heroes“ er lag frá 1977. Hvaða hressa rokk­hljóm­sveit flutti lagið?

2.  Í lag­inu eru nefndar nokkrar hetjur af ýmsu sem ekki eru lengur á meðal vor. Þar á meðal er Sancho Panza. En hver var Sancho Panza?

3.  Um dag­inn hrundu hluta­bréf í Facebook svo rosa­lega að annað eins hafði vart sést. Hver var ástæðan?

4.  Hér er ein afgangs­spurn­ing frá kölska­spurn­ing­unum frá í gær: Árið 2017 gaf íslensk rokk­hljóm­sveit út plöt­una Söngvar um hel­víti mann­anna. Hljóm­sveitin hafði þá starfað í nærri 30 ár en með nokkrum hléum, enda hafa með­limir hljóm­sveit­ar­innar feng­ist við margt annað gegnum tíð­ina, og tveir þeirra jafn­vel reynt fyrir sér í póli­tík. Hver er hljóm­sveitin?

5.  Gyllti átta­vit­inn, Lúmski hníf­ur­inn og Skugga­sjón­auk­inn. Hver skrif­aði þessar bækur?

6.  Dalai Lama er í senn trúar- og eig­in­legur þjóð­ar­leið­togi hvaða þjóðar?

7.  Hvað hét sú kona sem kölluð var lang­brók?

8.  Yves Saint-Laurent and­að­ist 2008, 71 árs að aldri. Hvað hafði hann feng­ist við um dag­ana?

9.  „Árdags í ljóma, upp rísi þjóð­lið og skip­ist í sveit. Skjótum upp fána, skært lúðrar hljóma.“ Við hvaða fljót á þetta að ger­ast?

10.  Hver skrif­aði fyrir tæpum 50 áraum leik­ritin Dómínó og Klukku­strengi?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða hljóm­sveit er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Stranglers.

2.  Þjónn Don Kíkóta.

3.  Notendum hafði fækkað í fyrsta sinn.

4.  Ham.

5.  Pullman.

6.  Tíbeta.

7.  Hall­gerður.

8.  Fata­hönnun.

9.  Öxar við ána, það er að segja Öxará.

10.  Jökull Jak­obs­son.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Birta Björns­dóttir frétta­maður.

Á neðri mynd­inni er hljóm­sveitin Gorillaz.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár