666. spurningaþraut: Hér er spurt um pokurinn!

666. spurningaþraut: Hér er spurt um pokurinn!

Þar sem 666 er kölluð „tala djöf­uls­ins“ þá snú­ast spurn­ing­arnar hér allar um sitt­hvað sem lýtur að honum.

Á efri mynd­inni er hluti af mál­verki sem hol­lenskur mál­ari mál­aði af heim­ili djöf­uls­ins, sjálfu hel­víti. Hvað hét málar­inn?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða bók var það ann­ars sem 666 var fyrst kallað númer and­skot­ans? Svarið þarf að vera nákvæmt.

2.  Í íslenskri þjóð­sögu snýr kona nokkur á bæði kölska og hand­hafa himn­is­rík­is­valds­ins, þegar henni tekst að koma látnum eig­in­manni sínum í himna­ríki þótt kölski hafi ætlað sér hann. Hvað kall­ast þessi þjóð­saga?

3.  Í frægi skáld­sögu segir frá því þegar djöf­ull­inn kemur með föru­neyti sitt til Moskvu og setur þar allt upp í loft. Hvað heitir sagan?

4.  Hvað hét ítalska skáldið sem orti um hel­víti kringum alda­mótin 1300?

5.  Hvað heitir leik­ar­inn sem hér leikur and­skot­ann í kvik­mynd­inni Angel Heart?

6.  „Skratt­inn fór að skapa mann ...“ segir í þjóð­vís­unni, en honum tókst heldur illa til. Hvað skap­aði hann óvart í stað­inn?

7.  Hvar á Íslandi var sagt að inn­gangur hel­vítis væri?

8.  Hvað er Tasman­íu­djöf­ull? Er það: Hefnd­ar­guð Tasman­íu­manna — poka­dýr — djúp­sjáv­ar­fiskur — pynt­inga­tæki frá mið­öldum — fugl af spör­fugla­ætt með klofna tungu?

9.  Hvað merkir að gefa dauð­ann og djöf­ul­inn í eitt­hvað? 

10. En í hverju gengur djöf­ull­inn? 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér er dauð­inn til vinstri, og ég spyr um hann því hann er svo ansi djöf­ul­legur í þeirri bíó­mynd sem hér um ræðir. En hvað er hann að gera á þessu skjá­skoti?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Opin­ber­un­ar­bók Jóhann­esar í Nýja testa­ment­inu.

2.  Sálin hans Jóns míns.

3.  Meist­ar­inn og Margar­íta.

4.  Dante.

5.  Robert de Niro.

6.  Kött. Kött­ur­inn var skinn­laus en það þarf ekki að taka fram.

7.  Í Heklu.

8.  Pokadýr.

9.  Gefa skít í eitt­hvað.

10.  Prada.

***

Á efri mynd­inni er hluti af mál­verki Bosch.

Á neðri mynd­inni er dauð­inn að hefja skák í bíó­mynd Bergmans, Sjöunda inn­sigl­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár