„Um fádæma siðleysi að ræða“

Ráð Rót­ar­innar sendir kær­leiks­kveðjur til þol­anda Einars: „Við trúum þér og stöndum með þér.“

„Um fádæma siðleysi að ræða“

„Í fáum störfum hefur sið­ferð­is­kennd meira gildi en í störfum fyrir fólk með vímu­efna­vanda og jað­ar­sett fólk,“ segir í yfir­lýs­ingu sem ráð Rót­ar­innar - félags um vel­ferð og lífs­gæði kvenna, sendi frá sér í dag. Undir yfir­lýs­ing­una skrifar Kristín I. Páls­dóttir fram­kvæmda­stjóri fyrir hönd ráðs­ins. Þar seg­ist ráðið harma þann skaða sem skjól­stæð­ingur SÁÁ hefur lýst að Einar Her­mann­son hafi valdið henni á árunum 2016 til 2018, á þeim tíma sem hann sat í stjórn SÁÁ. 

„Brot Einars gegn kon­unni er nöt­ur­leg valda­mis­notkun stjórn­ar­manns í frjálsum félaga­sam­tökum sem stjórn­völd hafa í rúm 40 ár treyst til að sjá um meg­in­þorra heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir fólk með vímu­efna­vanda. Í þeim hópi er margt af jað­ar­settasta fólki lands­ins og í ljósi þess valds sem stjórn­völd hafa fært SÁÁ í mála­flokknum er um fádæma sið­leysi að ræða sem sann­ar­lega hefur haft áhrif á störf Einars sem for­manns, þrátt fyrir yfir­lýs­ingu hans um hið gagn­stæða.“ 

Kaup á vændi fellur undir kyn­ferð­is­brotakafla almennra hegn­ing­ar­laga og varðar sektir eða eins árs fang­els­is­vist. Brotin fyrn­ast á tveimur árum. 

Skortur á verkferlum

Þá segir í yfir­lýs­ing­unni að það sé rétt að gera kröfur hjá aðilum sem veita heil­brigð­is­þjón­ustu ríki „hvorki ógn­ar­stjórn né annað ofbeldi og að fag­legir ferlar séu til staðar til að taka á slíkum málum.“ Árið 2017 hafi Rótin spurt stjórn­endur SÁÁ um verk­ferla sam­tak­anna varð­andi kyn­ferð­is­lega áreitni og ofbeldi og var því svarað að þeirra væri ekki þörf.

Þetta kom sömu­leiðis fram í umfjöllun Stund­ar­innar um starf­semi SÁÁ árið 2017, Það sem SÁÁ vill ekki tala um, en sam­kvæmt svörum við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar voru hvorki til skrif­legar verk­lags­reglur né var það skráð sér­stak­lega ef áreitni var beitt í með­ferð. 

Í umfjöll­unn­inni var haft eftir Valgerði Rún­ars­dóttur, for­stjóra sjúkra­húss­ins á Vogi að ekki væri verið að skipta „ónæð­is­málum“ í ein­hverja flokka, eða skrá þau sér­stak­lega. „Það er ekki haldin skrá hjá Landlækn­is­emb­ætt­inu um kyn­ferð­is­lega áreitni frá okkur eða neinum öðrum stöðum sér­stak­lega. Ég veit ekki til þess,“ sagði Val­gerður. Ekki liggur fyrir hvort ráð­ist hafi verið í úrbætur á því síðan. 

Í þeirri umfjöllun kom sömu­leiðis fram að skortur á verk­lags­reglum innan stofn­un­ar­innar hefði einnig verið gagn­rýndur af Land­lækn­is­emb­ætt­inu, en ekki eru til skrif­legar verk­lags­reglur fyrir marga þætti starf­sem­innar, meðal annars varð­andi eft­ir­lit með veikasta fólk­inu, sem er vistað á gát­inni á Vogi. 

Öryggi er lykilorð í vímuefnameðferð

Í yfir­lýs­ingu Rót­ar­innar segir að það séu von­brigði að Embætti land­læknis hafi haft vit­neskju um brotið án þess að aðhaf­ast. Líkt og fram hefur komið þá var málið aldrei form­lega til­kynnt til Embættis land­læknis og virð­ist ekki hafa ratað á borð land­læknis, þrátt fyrir að heil­brigð­is­starfs­maður hafi leitað til starfs­manns emb­ætt­is­ins eftir upp­lýs­ingum vegna þess að skjól­stæð­ingur hans greindi honum frá vændis­kaupum Einars. 

Þá segj­ast Rót­ar­konur hafa orðið fyrir þögg­un­ar­til­burðum, lítið hafi verið gert úr þeim og illa tekið í hug­myndir félags­ins innan SÁÁ. Þar væri lít­ill áhugi á áfalla- og kynja­mið­aðri nálgun sem þær telja nauð­syn­lega í með­ferð­ar­starf­semi. „Öryggi er lyk­il­orð í vímu­efna­með­ferð og í með­ferð fólks með erf­iða áfalla­sögu. Því miður hefur þetta öryggi ekki verið skapað í með­ferð­ar­kerf­inu, eins og kom glöggt fram í rann­sókn Rót­ar­innar og RIKK á reynslu kvenna af með­ferð.“ 

Stundin hefur á síð­ustu árum fjallað um reynslu kvenna sem hafa farið í með­ferð þar sem þær hafa kynnst mönnum sem hafa mis­notað sér veik­leika þeirra og beitt þær ofbeldi. Eins greindi Stundin frá því árið 2016 að ung stúlka hefði komið barns­haf­andi út af bangsa­deild­inni svoköll­uðu, sem er sér­gangur fyrir ung­menni á Vogi. Tveimur árum síðar var greint frá því að SÁÁ gæti ekki tryggt öryggi ung­menna undir átján ára aldri og vildi axla ábyrgð á skaða sem börn hafi orðið fyrir í með­ferð. 

Hlekkur í langri keðju

Í yfir­lýs­ing­unni segir að Rótin hafi ítrekað vakið athygli á vöntun kvenna á öryggi í með­ferð. „Og bent á þann vanda að láta með­ferð fólks, sem oft á við fjöl­þættan og flók­inn vanda að etja, vera að mestu í höndum áfengis- og vímu­efna­ráð­gjafa. Stjórn­völd hafa við­ur­kennt að menntun þeirra sé ekki í sam­ræmi við önnur störf í heil­brigð­is­kerf­inu en hefur ekki gripið til aðgerða til að bæta úr því.“

MeToo-bylt­ingin snú­ist um að breyta sam­fé­lag­inu til hins bvetra og hafna kerfum sem byggj­ast á mis­noktun valds. „Sá hörmu­legi atburður að for­maður sam­taka, sem stjórn­völd hafa gefið vald yfir fólki með vímu­efna­vanda, er ekki óheppi­leg til­viljun heldur hlekkur í langri keðju. Þessi keðja rofnar ekki nema farið sé í mark­vissar aðgerðir til að upp­ræta ofbeld­is­menn­ing­una.“ 

Að lokum sendir ráð Rót­ar­innar kær­leiks­kveðjur til þol­anda Einars. „Við trúum þér og stöndum með þér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár