Stjórnendur SÁÁ bera ábyrgð á þjónustunni en ekki starfsfólkið segir forstjóri SÍ

María Heimis­dóttir, forstjóri Sjúkra­trygginga segir að niður­staða í máli SÁÁ sé fengin eftir ítarlega skoðun og SÍ hafi verið skylt að tilkynna málið til héraðs­saksóknara. Ábyrgð á þjónustunni sé alfarið stjórn­enda SÁÁ en ekki einstakra starfs­manna. Hún segir afar ómaklegt að Ari Matthíasson, starfs­maður Sjúkra­trygginga hafi verið dreginn inn í umræðuna og sakaður um ómálefnaleg sjónarmið.

Ábyrgðin er stjórnenda, ekki starfsfólks
Ábyrgðin er stjórn­enda, ekki starfs­fólks María Heim­is­dóttir, for­stjóri Sjúkra­trygg­inga segir aldrei hafa verið bornar fram ásak­anir á hendur starfs­fólki SÁÁ. Mynd: Aðsend

María Heimis­dóttir, forstjóri Sjúkra­trygginga Íslands, segist í samtali við Stundina skilja að mál SÁÁ sem Sjúkra­tryggingar hafa sent til rann­sóknar hjá héraðs­saksóknara, veki athygli úr því það sé komið í fjölmiðla ,,en sem opinber stofnun getum við ekki tjáð okkur um það nema að takmörkuðu leyti.  Okkur er hins vegar skylt að vísa málum til saksóknara undir ákveðnum kringum­stæðum og við höfðum samráð við sérfræðinga utan stofnunarinnar meðan skoðun á málinu fór fram,” segir María sem telur þó mikilvægt að svara, eins og henni sé unnt, þeirri gagnrýni sem fram sé komin á ákvörðun Sjúkra­trygginga í máli SÁÁ.  

Sjúkra­tryggingar Íslands hafa, auk þess að kæra SÁÁ til embættis héraðs­saksóknara fyrir „gríðarlegt magn“ tilhæfu­lausra reikninga og vanefnda á þjónustu, krafið samtökin um 175 milljóna króna endur­greiðslu.

Framkvæmda­stjórn SÁÁ sagði í tilkynningu í vikunni að hún harmaði þann farveg sem málið væri komið í. Aðstæður sem fylgdu heims­faraldri hafi verið krefjandi og að það séu mikil vonbrigði að eftirlits­deild Sjúkra­trygginga skuli hafa komist að þeirri niður­stöðu að ekki hafi verið rétt að málum staðið og kært SÁÁ til embættis héraðs­saksóknara.

SÁÁ segir aðgerðir SÍ rýra traust almennings á samtökunum

Síðdegis í gær var haldinn auka­fundur 48 manna stjórnar SÁÁ vegna málsins. Þar var samþykkt ályktun sem ekki hefur verið birt opinber­lega en Stundin hefur afrit af. Í henni segir meðal annars að aðal­stjórn SÁÁ lýsi fullu trausti til framkvæmda­stjórnar, stjórn­enda og starfs­fólks samtak­anna. Ennfremur segir að stjórn SÁÁ harmi framgöngu Sjúkra­trygginga Íslands gagnvart SÁÁ og hún furði sig á því að SÍ hafi marg­ítrekað hunsað beiðni SÁÁ um samtal um meint ágreinings­efni áður en málin hafi verið sett í þann farveg sem þau séu nú í. 

Þá skorar stjórn SÁÁ á stjórn­endur Sjúkra­trygginga að setjast niður og ræða málin við SÁÁ af heilindum, með það að markmiði að leysa úr ágreiningi ef einhver sé. 

Enn fremur segir í ályktun fundarins að aðgerðir SÍ gegn SÁÁ hafi verið yfir­drifnar og rýri traust almennings á þjónustu SÁÁ. Þeir einu sem tapi á því séu skjólstæðingar SÁÁ, notendur þjónustunnar. 

,,Það er á ábyrgð stjórn­enda hvernig starf­semi er skipu­lögð og hvernig hún fer fram. Það er ekki ábyrgð ein­stakra starfs­manna"
María Heim­is­dótttir, for­stjóri Sjúkra­trygg­inga Íslands

María segist aðspurð um þessa gagnrýni SÁÁ að stjórn­endur samtak­anna hafi fengið mörg tækifæri til að koma fram með athuga­semdir við skoðun eftirlits­deildar SÍ og leiðrétta ef ástæða þótti til.  „Þetta eru niður­stöður ítarlegrar skoðunar Sjúkra­trygginga en ég vil taka fram að Sjúkra­tryggingar virða og meta mikils þá þjónustu sem starfs­fólk SÁÁ veitir. En það er á ábyrgð stjórn­enda hvernig starfsemi er skipulögð og hvernig hún fer fram. Það er ekki ábyrgð einstakra starfs­manna,“ segir María en í vikunni var send yfir­lýsing til fjölmiðla þar sem starfs­menn SÁÁ „mótmæla harkalega þeim ásökunum sem nú berast frá SÍ varðandi þjónustu sem áfengis- og vímuefna­ráðgjafar inntu af hendi á tímabilum þar sem ítrutstu sóttvarna var krafist af yfir­völdum vegna heims­faraldurs“. 

Nokkrir starfs­menn SÁÁ höfðu samband við Stundina eftir að yfir­lýsingin var send til fjölmiðla og lýstu óánægju með að hún væri sögð vera frá starfs­fólki SÁÁ því hún hefði ekki verið borin undir allt starfs­fólkið og því ekki í nafni allra sem þar vinna. „Hún var skrif­uð fyr­ir okk­ar hönd án okk­ar vit­und­ar,“ sagði starfs­mað­ur sem Stund­in ræddi við. Fleira starfs­fólk sem rætt var við tók í sama streng en aðr­ir sögð­ust treysta stjórn SÁÁ til að tala fyr­ir hönd starfs­fólks enda sé það gert í góðri trú. 

 

Erfitt ástand leysi stofnanir og samtök ekki undan tilkynningaskyldu 

Stjórn­endur SÁÁ hafa einnig bent á að Sjúkra­tryggingar hafi ekki tekið tillit til þeirra fordæma­lausu aðstæðna sem sköpuðust vegna heims­faraldurs. Og að vegna stöðunnar í samfélaginu hafi verið ákveðið að hringja í skjólstæðinga í stað hefð­bundinna ráðgjafa­viðtala. 

„Við áttum okkur eins og aðrir á því að það er heims­faraldur og það þurftu margir að breyta sinni þjónustu vegna ástandsins en það gildir nú það engu að síður að veitendur þurfa að tilkynna formlega um að þau ætli að breyta þjónustunni og þurfa að leita samþykkis fyrir því að fá greitt fyrir þessa þjónustu. Einnig setur land­læknir ákveðin skilyrði og skilgreinir hvað telst vera fjar­þjónusta og sú þjónusta sem SÁÁ veitti á þessum tíma virðist ekki samræmast skilgreiningu land­læknis um fjar­þjónustu, að minnsta kosti ekki í öllum tilvikum, til dæmis þegar um stutt símtöl var að ræða sem síðan voru sendir reikningar fyrir eins og það hafi verið ráðgjafa­viðtöl,“ segir María. 

Hún segir að erfitt ástand í samfélaginu leysi fólk ekki undan því að tilkynna Sjúkra­tryggingum formlega um svo veiga­miklar breytingar á þjónustunni, óska eftir samtali um að samið verði um greiðslur vegna þess „og síðast en ekki síst að fylgja reglum heilbrigðis­yfirvalda um hvernig þjónustan er veitt,“ segir María. 

Segja Sjúkratryggingar hafa verið upplýstar

Stjórn­endur SÁÁ segja hins vegar að Sjúkra­tryggingar hafi verið upplýstar um að gerðar yrðu breytingar á þjónustunni til að „viðhalda sambandi við skjólstæðinga í heims­faraldri,“ eins og Einar Hermannsson formaður SÁÁ komst að orði í viðtali við Stundina í síðustu viku. Þá sagði Einar einnig:  

„Valgerður Rúnars­dóttir, yfir­læknir á Vogi, lét Maríu Heimis­dóttur, forstjóra Sjúkra­trygginga, vita af því í mars 2020 að SÁÁ væri að fara í fjar­þjónustu og myndi nota til þess símtöl. Þannig að þau voru alls ekki í neinu myrkri, en það er eins og þau hafi ekki lesið bréfið sem stjórn SÁÁ sendi þeim í sumar. Þau hlustuðu ekki og lásu ekki bréfið frá okkur,“ sagði Einar.

Val­gerður Rún­ars­dóttirFor­stjóri SÍ segir ekki rétt að fram­kvæmda­stjóri lækn­inga hjá SÁÁ hafi sent form­legt erindi um breyt­ingar á þjón­ustu

María segir að þetta hafi aldrei verið tilkynnt formlega. „Það er þannig að Valgerður Rúnars­dóttir var í sambandi gegnum tölvupóst vegna allt annars máls í starfi SÁÁ en það varðaði uppsagnir á sálfræðingum sem þar störfuðu og ég hafði áhyggjur af því. Valgerður sendi okkur póst með útskýringum á því hvaða áhrif uppsagnirnar hefðu á þjónustu SÁÁ og inni í þeim pósti kom með óformlegu orðalagi fram að  þau væru að færa sig í fjar­þjónustu. Síðan var tölvu­pósturinn áfram um þetta erindi sem ég hafði sent sem varðaði sálfræði­þjónustu og það er ekki með nokkru móti hægt að líta á þetta sem tilkynningu eða ákvörðun hvað þá að þarna hafi verið leitað til okkar með eitthvert samþykki,“  segir María og bætir við að í bréfa­skiptum SÁÁ og SÍ hafi komið fram að forsvars­fólk samtak­anna taldi að þau hefðu átt að tilkynna formlega um hvernig staðið yrði að viðtölum við skjólstæðinga. „Þannig að þau segja það nú sjálf að það hafi ekki verið rétt að þessu staðið,“  segir María.  

Stundin hefur undir höndum bréf sem Einar Hermannsson, formaður SÁÁ sendi til allra í 48 manna aðal­stjórninni síðastliðið sumar. Í bréfinu segir:

„Við höfum tekið saman upplýsingar og gögn sem beðið hefur verið um og viljum að sjálfsögðu leysa þetta mál eins hratt og örugglega og unnt er. Eftir á að hyggja hefði kannski átt að skrá þessi viðtöl með öðrum hætti en gert var,“ segir í bréfinu sem formaður SÁÁ sendi til stjórnar samtak­anna síðastliðið sumar.   

„Þannig að þau segja það nú sjálf að það hafi ekki verið rétt að þessu staðið“
María Heim­is­dóttir, for­stjóri Sjúkra­trygg­inga Íslands

Stundin hefur upplýsingar um að í bréfi SÁÁ sem sent var til SÍ síðastliðið sumar komi fram það álit forsvars­manna SÁÁ að samtökin hefðu átt að upplýsa formlega um þessar breytingar. Samkvæmt heimildum Stundarinnar segir í bréfinu að ekki sé litið framhjá því að þrátt fyrir sérstakar og fordæma­lausar aðstæður hafi eflaust mátt gera betur í einhverjum atriðum, þ.á.m. hvað form reiknings­gerðar varðar.  Í bréfinu segir: „Hefði t.d. farið betur að SÍ hefði verið nánar formlega upplýst um tíma­bundna breytta framkvæmd þjónustu og form reiknings­gerðar gagnvart stofnuninni.“

,,Beinlínis skylt að grípa til aðgerða"

María segir það eitt af hlut­verkum Sjúkra­trygginga að hafa eftirlit með þjónustunni sem veitt er samkvæmt samningum sem gerðir hafa verið. „Það eru ýmis eftirlitsmál sem við höfum verið með í gangi og sem betur fer enda þau nú oft án nokkurra aðgerða og það er auðvitað það sem við viljum helst að það finnist ekkert athuga­vert við eftirlit en inn á milli koma upp mál eins og þetta þar sem okkur er beinlínis skylt að grípa til aðgerða eins og að vísa til annarra stofnana, í þessu tilviki til embættis land­læknis, Persónu­verndar og saksóknara,“segir María og bætir við að Sjúkra­tryggingar hafi alla tíð átt góð samskipti við SÁÁ. „Við metum þjónustu þeirra afar mikils og allt starfs­fólk Sjúkra­trygginga er upplýst um hversu mikilvæg starfsemi SÁÁ er og hve þjónustan sem þar er veitt er viðkvæm. Starfs­fólk Sjúkra­trygginga hefur það í huga,“ segir María.

Segir ómaklegt að starfsmaður SÍ sé dreginn inn í umræðuna 

Þykir leitt að per­sóna Ara sé dregin inn í máliðGagnrýni á störf Ara Matth­í­as­sonar er til­hæfu­laus, segir for­stjóri SÍ

Hörður J. Oddfríðarson dagskrár­stjóri göngu­deildar SÁÁ sagði í Frétta­blaðinu í vikunni að Sjúkra­tryggingar hefðu brotið lög þegar starfs­maður SÍ skoðaði sjúkra­skrár skjólstæðinga SÁÁ. „Þetta er ekki rétt. Við hjá Sjúkra­tryggingum teljum okkur hafa verið að vinna innan okkar laga­heimilda.  Það voru gerðar breytingar á lögum um sjúkra­tryggingar árið 2020 og þar er heimild stofnunarinnar til að sýsla með gögn bæði útskýrð vandlega og þær rýmkaðar.  Starfs­fólki SÍ er þetta því heimilt enda staðreyndin sú að mörg verkefni SÍ krefjast þess að unnið sé með persónu­greinanleg gögn,“ segir María.

,,Mér þykir afar leitt að einn starfs­maður Sjúkra­trygg­inga hafi verið dreg­inn inn í umræð­una og það á afar ómak­legan hátt"
María Heim­is­dóttir, for­stjóri Sjúkra­trygg­inga

Í samtölum sem Stundin hefur átt við nokkra sem sitja í stjórn samtak­anna og við starfs­fólk undan­farna daga hefur verið nefnt að það sé einkennilegt að fyrr­verandi framkvæmda­stjóri SÁÁ sé deildar­stjóri eftirlits­deildar SÍ og stýri skoðun stofnunarinnar á SÁÁ. Þar er einnig verið að tala um Ara Matthíasson.  „Mér þykir afar leitt að einn starfs­maður Sjúkra­trygginga hafi verið dreginn inn í umræðuna og það á afar ómaklegan hátt. Hann hefur sakaður um ómálefnalega nálgun og rökin eru þau að hann hafi á árum áður starfað hjá SÁÁ.  Þessi gagnrýni er algerlega tilhæfu­laus og við hörmum það að verið sé að draga inn í þessa umræðu einn starfs­mann sem er auðvitað bara að vinna sína vinnu fyrir stofnunina. Það eru Sjúkra­tryggingar Íslands sem standa fyrir eftirlitinu, ekki einstakir starfs­menn eða deild heldur stofnunin sem slík. Það er rétt að viðkomandi starfs­maður var framkvæmda­stjóri SÁÁ árin 2006 - 2009, síðan eru liðin tæp 13 ár. Það eru engar forsendur til að ætla að hann sé með einhverjum hætti vanhæfur til að sinna þessu eftirliti. Enda eru ýmsir aðrir innan stofnunarinnar sem hafa komið að þessu eftirliti það er ekki eins og það sé einn starfs­maður að vinna þetta í tómarúmi. Þá var  leitað til utan­aðkomandi ráðgjafar við vinnslu málsins. Það snýr ennfremur að reikningum vegna áranna 2020 og 2021,“ segir María.

„Málið er farið til héraðssaksóknara og því úr okkar höndum“

Framkvæmda­stjórn SÁÁ segir að Sjúkra­tryggingar hafi ekki brugðist við ósk þeirra að finna leið til lausna áður en málið færi lengra „Því miður hefur ekki verið brugðist við þeim beiðnum. Ákall um samráðs­vettvang og leið­beiningar er ítrekað, svo hægt verði að koma í veg fyrir að staða eins og þessi komi upp í fram­tíðinni,“ segir í tilkynningu frá stjórninni.

„Við erum búin að fara ítarlega yfir þetta. Við höfum skipst á mjög miklu magni upplýsinga og við höfum ítrekað gefið SÁÁ færi á að koma með enn frekari skýringar. Nú liggur fyrir niður­staða.  Málið er farið til héraðs­saksóknara og því úr okkar höndum,“ segir María. Hún segir að SÍ telji að öll helstu gögn málsins liggi fyrir og til að tryggja rekjanleika hafi verið lögð áhersla á skrifleg samskipti. 

„Og þar sést vel að það var oft kallað eftir skýringum og upplýsingum. Við verðum að muna að svona eftirlit er formlegt ferli og því mikilvægt að  samskipti séu formleg og skrifleg því þá er hægt að rekja þau” segir María og bætir við að starfs­fólk og stjórn­endur Sjúkra­trygginga fundi oft ,,um alla mögulega hluti” með sínum samnings­aðilum ,,en eftirlit er þess eðlis og það þekkja öll sem farið hafa í gegnum slíkt til dæmis hjá embætti land­læknis eða ríkis­endur­skoðanda að það fer fram með formlegum hætti, yfirleitt með skrif­legum samskiptum, eftir því sem við best vitum. Við höfum ekki rift samningi okkar við SÁÁ. Í sumum eftirlits­málum hefur því miður komið til þess. Það er sem betur fer ekki staðan hér þannig að það er sannarlega talsamband á milli aðila. Samningur Sjúkra­trygginga og SÁÁ er virkur,“ segir María  

Stjórn­endur SÁÁ hafa sagt að þau hafi alltaf haft trú á að málið myndi vera leyst með samtali milli SÁÁ og Sjúkra­trygginga. „Já, ég ætla ekki að bera brigður á það. Okkur finnst best þegar ekkert finnst við eftirlit, það eru bestu niður­stöður sem hægt er að óska sér. Þannig var það bara ekki í þessu máli. Því miður,“ segir María Heimis­dóttir, forstjóri Sjúkra­trygginga Íslands. 

 



Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Það virðist erfitt að reka einkarekna heilbrigðisstofnun skandallaust.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Rannsókn á SÁÁ

Fréttir

Segja yfir­lýsinguna ekki í nafni alls starfs­fólks SÁÁ

Yfir­lýsing frá starfs­fólki SÁÁ var ekki borin undir allt starfs­fólk samtak­anna áður en hún var send til fjölmiðla í gær, samkvæmt heimildum Stundarinnar. „Hún var skrifuð fyrir okkar hönd án okkar vitundar,“ segir starfs­maður sem Stundin ræddi við. Fleira starfs­fólk sem rætt var við tók í sama streng en aðrir sögðust treysta stjórn SÁÁ til að tala fyrir hönd starfs­fólks enda sé það gert í góðri trú.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár