Framkvæmdastjórn SÁÁ slegin vegna lögreglukæru

„Fram­kvæmda­stjórn SÁÁ harmar þann far­veg sem málið er komið í,“ segir í til­kynn­ingu fram­kvæmda­stjórnar SÁÁ sem Einar Her­manns­son, for­maður sam­tak­anna, sendi fjöl­miðlum. Sjúkra­trygg­ingar Íslands kærðu sam­tökin til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir „gríð­ar­legt magn“ til­hæfu­lausra reikn­inga.

Framkvæmdastjórn SÁÁ slegin vegna lögreglukæru
Sleginn Einar Her­manns­son, for­maður SÁÁ, er sleg­inn, líkt og hinir í fram­kvæmda­stjórn sam­tak­anna, yfir nið­ur­stöðu Sjúkra­trygg­inga Íslands um að kæra sam­tökin til hér­aðs­sak­sókn­ara.

„Fram­kvæmda­stjórn SÁÁ er slegin yfir þeirri stöðu sem upp er komin,“ segir í til­kynn­ingu Einars Her­manns­sonar, for­manns SÁÁ fyrir hönd fram­kvæmda­stjórnar sam­tak­anna, til fjöl­miðla í morgun. Tilefnið er kæra Sjúkra­trygg­ingar til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir „gríð­ar­legt magn“ til­hæfu­lausra reikn­inga og van­efnda á þjón­ustu. Stofn­unin hefur líka krafið SÁÁ um end­ur­greiðslu 175 millj­óna króna vegna máls­ins. 

Í yfir­lýs­ingu SÁÁ segir að ekki hafi verið tekið til­lit til skýr­inga sam­tak­anna í nið­ur­stöðu eft­ir­lits­deildar Sjúkra­trygg­inga. 

Stundin fjall­aði ítar­lega um málið í síð­asta tölu­blaði sem og í gær, þar sem ásak­anir Sjúkra­trygg­inga voru raktar. Þar kom meðal ann­ars fram að athuga­semdir SÁÁ við nið­ur­stöðu eft­ir­lits­deildar Sjúkra­trygg­inga breyttu engu um þá nið­ur­stöðu að sam­tök­in hafi sent gríð­ar­legt magn af til­hæfu­laus­um reikn­ing­um. Sjúkra­trygg­ingar kynntu sam­tök­unum nið­ur­stöðu sína í tíu blað­síðna bréfi sem sent var 29. des­em­ber síð­ast­lið­inn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Rannsókn á SÁÁ

Stjórnendur SÁÁ bera ábyrgð á þjónustunni en ekki starfsfólkið segir forstjóri SÍ
Fréttir

Stjórn­endur SÁÁ bera ábyrgð á þjón­ust­unni en ekki starfs­fólkið segir for­stjóri SÍ

María Heim­is­dóttir, for­stjóri Sjúkra­trygg­inga segir að nið­ur­staða í máli SÁÁ sé fengin eftir ítar­lega skoðun og SÍ hafi verið skylt að til­kynna málið til hér­aðs­sak­sókn­ara. Ábyrgð á þjón­ust­unni sé alfarið stjórn­enda SÁÁ en ekki ein­stakra starfs­manna. Hún segir afar ómak­legt að Ari Matth­í­as­son, starfs­maður Sjúkra­trygg­inga hafi verið dreg­inn inn í umræð­una og sak­aður um ómál­efna­leg sjón­ar­mið.
Stjórn SÁÁ lýsir fullu trausti til framkvæmdastjórnar SÁÁ
Fréttir

Stjórn SÁÁ lýsir fullu trausti til fram­kvæmda­stjórnar SÁÁ

Auka­fundi stjórnar SÁÁ sem boðað var til vegna nið­ur­stöðu Sjúkra­trygg­inga Íslands lauk rétt í þessu. Á fund­inum var lýst yfir fullu trausti á fram­kvæmda­stjórn SÁÁ, stjórn­endur og starfs­fólk sam­tak­anna. Í ályktun sem sam­þykkt var segir meðal ann­ars, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar, að aðgerðir SÍ gegn SÁÁ hafi verið yfir­drifnar og rýri traust almenn­ings á sam­tök­unum.
Segja yfirlýsinguna ekki í nafni alls starfsfólks SÁÁ
Fréttir

Segja yfir­lýs­ing­una ekki í nafni alls starfs­fólks SÁÁ

Yfir­lýs­ing frá starfs­fólki SÁÁ var ekki borin undir allt starfs­fólk sam­tak­anna áður en hún var send til fjöl­miðla í gær, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. „Hún var skrifuð fyrir okkar hönd án okkar vit­undar,“ segir starfs­maður sem Stundin ræddi við. Fleira starfs­fólk sem rætt var við tók í sama streng en aðrir sögð­ust treysta stjórn SÁÁ til að tala fyrir hönd starfs­fólks enda sé það gert í góðri trú.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár