Héraðssaksóknari rannsakar SÁÁ

Ólafur Þór Hauksson, hér­aðs­sak­sókn­ari stað­festir að for­stjóri Sjúkra­trygg­inga Íslands hafi sent mál sem varðar SÁÁ til emb­ætt­is­ins þar sem það verði rann­sakað. Málið hefur einnig verið til­kynnt til Per­sónu­verndar og land­lækn­is­emb­ætt­is­ins.

Héraðssaksóknari rannsakar SÁÁ
Mál SÁÁ komið inn á borð Ólafs Þórs Hauks­sonar, hér­aðs­sak­sókn­ara Mynd: Stundin / JIS

Stundin hefur fengið stað­fest hjá Ólafi Þór Hauks­syni, hér­aðs­sak­sókn­ara að María Heim­is­dóttir, for­stjóri Sjúkra­trygg­inga Íslands hafi sent emb­ætt­inu mál til rann­sóknar sem deildin hefur verið með til skoð­unar og varði starfs­hætti SÁÁ.
Ólafur Þór segir að hann geti ekki tjáð sig frekar um málið á þessu stigi.


Eins og Stundin hefur greint frá að und­an­förnu gerir eft­ir­lits­nefnd Sjúkra­trygg­inga Íslands alvar­legar athuga­semdir við starfs­hætti SÁÁ, þar á meðal við þús­undir reikn­inga sem ráð­gjafar SÁÁ sendu til Sjúkra­trygg­inga Íslands en eft­ir­lits­deildin segir vera til­hæfu­lausa. Einnig eru gerðar alvar­legar athuga­semdir við með­ferð á sjúkra­skrám. 

Þá hefur Stundin heim­ildir fyrir því að búið sé að gera Per­sónu­vernd við­vart um málið og land­lækn­is­emb­ættið hefur stað­fest við Stundina að til­kynn­ing um það hafi borist þangað.

Sjúkra­trygg­ingar hófu að skoða SÁÁ um miðjan febr­úar í fyrra …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Rannsókn á SÁÁ

Stjórnendur SÁÁ bera ábyrgð á þjónustunni en ekki starfsfólkið segir forstjóri SÍ
Fréttir

Stjórn­endur SÁÁ bera ábyrgð á þjón­ust­unni en ekki starfs­fólkið segir for­stjóri SÍ

María Heim­is­dóttir, for­stjóri Sjúkra­trygg­inga segir að nið­ur­staða í máli SÁÁ sé fengin eftir ítar­lega skoðun og SÍ hafi verið skylt að til­kynna málið til hér­aðs­sak­sókn­ara. Ábyrgð á þjón­ust­unni sé alfarið stjórn­enda SÁÁ en ekki ein­stakra starfs­manna. Hún segir afar ómak­legt að Ari Matth­í­as­son, starfs­maður Sjúkra­trygg­inga hafi verið dreg­inn inn í umræð­una og sak­aður um ómál­efna­leg sjón­ar­mið.
Stjórn SÁÁ lýsir fullu trausti til framkvæmdastjórnar SÁÁ
Fréttir

Stjórn SÁÁ lýsir fullu trausti til fram­kvæmda­stjórnar SÁÁ

Auka­fundi stjórnar SÁÁ sem boðað var til vegna nið­ur­stöðu Sjúkra­trygg­inga Íslands lauk rétt í þessu. Á fund­inum var lýst yfir fullu trausti á fram­kvæmda­stjórn SÁÁ, stjórn­endur og starfs­fólk sam­tak­anna. Í ályktun sem sam­þykkt var segir meðal ann­ars, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar, að aðgerðir SÍ gegn SÁÁ hafi verið yfir­drifnar og rýri traust almenn­ings á sam­tök­unum.
Segja yfirlýsinguna ekki í nafni alls starfsfólks SÁÁ
Fréttir

Segja yfir­lýs­ing­una ekki í nafni alls starfs­fólks SÁÁ

Yfir­lýs­ing frá starfs­fólki SÁÁ var ekki borin undir allt starfs­fólk sam­tak­anna áður en hún var send til fjöl­miðla í gær, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. „Hún var skrifuð fyrir okkar hönd án okkar vit­undar,“ segir starfs­maður sem Stundin ræddi við. Fleira starfs­fólk sem rætt var við tók í sama streng en aðrir sögð­ust treysta stjórn SÁÁ til að tala fyrir hönd starfs­fólks enda sé það gert í góðri trú.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár