Heimatilbúin sprengja ekki talin tengjast sendiráði Bandaríkjanna

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir að hlut­ur­inn sem fannst í gær í ruslagámi við Mánatún hafi verið heima­til­búin sprengja. Sérsveit rík­is­lög­reglu­stjóra var kölluð til vegna máls­ins í gær og voru þrír hand­teknir. Tveir þeirra eru komnir í afplánun vegna fyrri refsi­dóma og þriðja mann­inum hefur verið sleppt.

Heimatilbúin sprengja ekki talin tengjast sendiráði Bandaríkjanna
Úr mynda­safni Mynd: Pressphotos.biz

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu stað­festir í til­kynn­ingu til fjöl­miðla að hlut­ur­inn sem fannst í gær í ruslagámi við Mánatún í Reykja­vík hafi verið heima­til­búin sprengja. Sérsveit rík­is­lög­reglu­stjóra var kölluð út til að tryggja vett­vang og eyða sprengj­unni. 

Lög­reglan segir að rann­sókn miði vel og að ekk­ert hafi komið fram sem bendi til þess að málið teng­ist sendi­ráði erlends ríkis en Frétta­blaðið sagði frá því í gær­kvöldi að bústaður sendi­herra Banda­ríkj­anna væri næsta hús við gám­inn þar sem sprengjan fannst. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar býr eng­inn í sendi­ráðs­bú­staðnum um þessar mundir. 

Eins og fram hefur komið voru þrír handteknir í tengslum við málið. Einum þeirra hefur nú verið sleppt en tveir eru komnir í afplánun vegna fyrri refsi­dóma segir í til­kynn­ingu frá lög­reglu.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár