590. spurningaþraut: Nú leikum við bókarheiti

Hér er spurt um nöfn á íslenskum skáld­sögum. Alltaf vantar eitthvað í bókar­heitið og þið eigið að finna út hvað það er. Auka­spurningarnar snúast hins vegar um erlendar skáldsögur. 

Fyrri auka­spurning:

Myndin hér að ofan er úr kvik­myndagerð skáldsögu sem heitir ... hvað?

***

Aðal­spurningar:

1.  Ein af Íslendinga­sögunum heitir Gunnlaugs saga ...?

2.  Árið 2004 kom út skáldsaga Auðar Jóns­dóttur, Fólkið í ...?

3.  Vigdís Gríms­dóttir hafði rúmum áratug áður sent frá sér skáld­söguna Ég heiti Ísbjörg, ég er ...?

4.  Ein af skáld­sögum Einars Más Guðmunds­sonar heitir Vængja­sláttur í ...?

5.  Elísabet Jökuls­dóttir gaf í fyrra út bókina Apríls­ólar ... hvað?

6.  Ein af skáld­sögum Halldórs Laxness heitir Kristni­hald undir ... hverju?

7.  Hall­grímur Helgason skrifaði hins vegar skáld­söguna Konan við ...?

8.  Ein af bókum Guðrúnar Helga­dóttur heitir Ástarsaga úr ...?

9.  Ein af skáld­sögum Jóns Kalmans Stef­ánssonar heitir Eitthvað á stærð við ...?

10.  Jóhanna Kristjóns­dóttir gaf út ástarsögu fyrir 60 árum sem nefndist Ást á ...?

***

Seinni auka­spurning:

Myndin hér að neðan er úr einni af mörgum kvikmynda­útgáfum af skáld­sögunni ...?

*** 

Svör við aðal­spurningum:

1.  Ormstungu.

2.  Kjallaranum.

3.  Ljón.

4.  Þakrennum.

5.  Kuldi.

6.  Jökli.

7.  Þúsund gráður.

8.  Fjöllunum.

9.  Alheiminn.

10.  Rauðu ljósi.

***

Svör við auka­spurningum:

Efri myndin er úr sjónvarps­þáttum eftir Sögu þernunnar (Handmaid's Tale).

Sú neðri er bersýni­lega eftir sögunni Oliver Twist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár