Fyrri aukaspurning:
Hvað er karlinn hér að ofan að syngja?
***
Aðalspurningar:
1. Tiltekin þjóð eða þjóðernishópur er sá fjölmennasti í heimi og telur 1,4 milljarða manna. 92 prósent Kínverja tilheyra þessari þjóð. Hvað nefnist hún?
2. Delaware, Idaho, Jefferson, Minnesota, Nebraska, Wyoming. Fimm af þessum landfræðiheitum merkja ríki í Bandaríkjunum, en eitt ekki. Hvað af þessum sex er ekki amerískt ríki?
3. Hverjir eru eða voru Denisovar?
4. Í hvaða landi er héraðið Umbria?
5. Hver setti Alþingi í upphlut í nóvember sem starfsaldursforseti þingsins? (Hér skrifaði ég í fyrstu „peysuföt“ en upphlutur var það, heillin!)
6. Amelia Earhart var fræg kona á sinni tíð, og raunar enn. Hún hvarf árið 1937 og örlög hennar eru enn ókunn. Earhart var fræg fyrir að vera ...?
7. Nafnið á hvaða íþrótt er dregið af hollensku orði sem merkir „kylfa“?
8. Frá hvaða landi kemur fótboltakarlinn Lionel Messi?
9. Hoyvik er þriðji fjölmennasti bærinn á ákveðnu svæði, sem sé í ...?
10. Í grísku goðafræðinni segir frá pilti einum sem var svo fagur að hann varð ástfanginn af sinni eigin spegilmynd. Eyddi hann svo ævinni við að horfa dolfallinn af hrifningu á sjálfan sig. Hvað hét þessi sjálfhverfi piltur?
***
Seinni aukaspurning:
Hér að neðan má sjá teiknimyndasöguútgáfu af frægu bókmenntaverki, sem er ... hvað?

***
Svör við aðalspurningum:
1. Han.
2. Jefferson.
3. Útdauð manntegund, samtímamenn Neanderdalsmanna.
4. Ítalíu.
5. Þorgerður Katrín.
6. Flugmaður.
7. Golf.
8. Argentínu.
9. Færeyjum. Hoyvik mun raunar nú yfirleitt talin hluti Þórshafnar.
10. Narkissos.
***
Svör við aukspurningum:
Á efri myndinni má sá PSY syngja Gangnam Style. Sjá hér!
Neðri myndin sýnir útgáfu af Makbeð eftir Shakespeare.

Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































Athugasemdir