Óskýr samningur og ófullnægjandi eftirlit með Init

Líf­eyr­is­sjóð­irnir hefðu átt að sinna eft­ir­liti sínu með samn­ingi um rekstur hug­bún­að­ar­kerf­is­ins Jóakims betur. Samn­ing­ur­inn sem sjóð­irnir gerðu um rekst­ur­inn við fyr­ir­tækið Init var heldur ekki nógu skýr. Þetta er mat end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tæk­is­ins EY sem var ráðið til að yfir­fara við­skipta­sam­band Init og líf­eyr­is­sjóð­anna.

Óskýr samningur og ófullnægjandi eftirlit með Init
Í eigu sjóðs­fé­laga Kerfið Jóakim er sam­eign sjóðs­fé­laga í tíu íslenskum líf­eyr­is­sjóðum. Mynd: Pressphotos

Líf­eyr­is­sjóðir sinntu ekki nauð­syn­legu eft­ir­liti með samn­ingi sínum við hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Init. Fyr­ir­tækið sá um að þróa og reka kerfi sem var í eigu ell­efu líf­eyr­is­sjóða sem heldur utan um rétt­indi og lán tug­þús­unda sjóð­fé­laga margra íslenskra sjóða.

Þetta eru nið­ur­stöður skýrslu sem end­ur­skoð­enda­skrif­stofan EY vann fyrir hönd Reikni­stofu líf­eyr­is­sjóð­anna, eign­ar­halds­fé­lags­ins sem heldur utan um eign sjóð­anna ell­efu í kerf­inu. Áður hafa sjóð­irnir sjálfir greint frá því sem EY telur vera marg­vís­leg brot Init á sama samn­ingi.  

Stundin hefur séð ein­tak af loka­út­gáfu skýrsl­unnar en Reikni­stofan ákvað að birta aðeins hluta hennar opin­ber­lega. 

Óskýr samningur

EY gagn­rýnir einnig samn­ings­gerð­ina, sem starfs­menn end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tæk­is­ins telja að hafi ekki verið nægi­lega skýr og ósam­ræmi hafi verið um hvaða aðila væri verið að vísa í í ein­staka greinum hans. Á það til að mynda við um ábyrgð­ar­að­ila vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga en Jóakim …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár