585. spurningaþraut: Ímyndið ykkur að það væru engin lönd

585. spurningaþraut: Ímyndið ykkur að það væru engin lönd

Fyrri auka­spurn­ing: Hver er konan sem prýddi for­síðu tíma­rits­ins Vogue í haust?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Doktor Jekyll og ... hver?

2.  Hver skrif­aði um þá?

3.  Í hvaða firði er Æðey?

4.  Skoffín og skugga­baldrar eru afkvæmi ... hverra?

5.  Kaþólska kirkjan í Reykja­vík er yfir­leitt kölluð Landa­kots­kirkja. En form­legt heiti hennar er eða var ...?

6.  Hver samdi lagið Imagine?

7.  Í því lagi syngur höf­und­ur­inn: „Imagine there's no countries / It isn't hard to do / Nothing to kill or die for / and no ...“ No hvað?

8.  Mið­jarð­ar­hafi tengj­ast nokkur inn­höf, svokölluð. Nefnið tvö þeirra til að fá stig.

9.  Sjálf­sagt eru til fleiri en ein borg sem heitir Casablanca. En í hvaða landi er sú fræg­asta þeirra?

10.  Hvað fékkst Forn-Grikkinn Platon við í líf­inu?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvern er verið að syrgja á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Mister Hyde.

2.  Steven­son.

3.  Ísa­fjarð­ar­djúpi. Að nefna bara Ísafjörð er ekki rétt.

4.  Refs og kattar.

5.  Krists­kirkja. Alveg fullt er Dóm­kirkja (eða Basilíka) Krists kon­ungs, en Krists­kirkja dugar.

6.  John Lennon.

7.  „... religion too.“

8.  Svarta­haf, Marm­ara­haf, Eyjahaf og Adríahaf. Einnig gef ég rétt fyrir Tyrren­íu­haf, þótt það sé haf­svæði frekar en inn­haf.

9.  Marokkó.

10.  Heim­speki.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er söng­konan unga, Billie Eilish.

Á neðri mynd­inni er verið að syrgja Eggert Ólafsson vara­lög­mann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Emil Kristjánsson skrifaði
    Vúhú... laumupúkast inn með fullt hús stiga og aukaspurninga einnig... 10/2
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár