573. spurningaþraut: Þegar Jesúa frá Nasaret mettaði mannfjöldann!

Fyrri auka­spurning:

Hvað er að sjá á myndinni hér að ofan? Þið megið vita að þetta er í tengslum við ákveðið verk sem vakti gríðar­lega athygli á sínum tíma — en það eru einhverjir áratugir síðan.

***

Aðal­spurningar:

1.  Snemma sumars 1973 kom þáverandi Bandaríkja­forseti í heimsókn til Íslands. Hvað hét hann?

2.  Hann var kominn til að hitta forseta Frakk­lands. Hvað hét sá?

3.  Hvað heitir annars höfuðborg Frakk­lands?

4.  Hvaða fræga bygging stendur úti á eyju í frönsku höfuð­borginni miðri?

5.  Hver er næst fjölmennasta borg Frakk­lands á eftir höfuð­borginni?

6.  Með hverju gat Jesú náð að metta mikinn og svangan mann­fjölda sem hafði safnast að til að hlýða á hann prédika?

7.  Ríkis­borgari hvaða lands var Mata Hari?

8.  En útsendarar hvaða ríkis létu taka hana af lífi?

9.  Hver söng upphaf­lega lagið „Það er daumur að vera með dáta“?

10.  Alan Banks, Peter Boyd, Adam Dalgliesh, Christopher Foyle, Jack Frost, George Gently, Thomas Lynley, Jimmy Pérez, James Taggart, Reginald Wexford. Hvaða nöfn eru þetta?

***

Seinni auka­spurning:

Hver er fata­karlinn á myndinni?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Nixon.

2.  Pompidou.

3.  París.

4.  Dómkirkjan Notre Dame.

5.  Marseilles.

6.  Fimm brauðum og tveim fiskum.

7.  Hún var hollensk.

8.  Frakk­lands.

9.  Soffía Karls­dóttir.

10.  Þetta eru lögreglu­menn í breskum glæpa­þáttum síðustu 20 árin eða svo.

***

Svör við auka­spurningum.

Á efri myndinni mátti sjá brot af plakatinu sem auglýsti kvik­myndina Jaws.

Á neðri myndinni er aftur á móti Christian Dior fata­hönnuður.

Þið hafið væntanlega veitt athygli gínunni fyrir aftan hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár