570. spurningaþraut: Barátta við geimverur og illþýði ýmislegt

570. spurningaþraut: Barátta við geimverur og illþýði ýmislegt

Hér verður spurt um vís­inda­skáld­skap, geim­verur og annað þvíum­líkt.

Fyrri auka­spurn­ing: Þessi fag­ur­hærða kona hér að ofan tók þátt í bar­áttu gegn ill­skeyttum geim­verum í breskum sjón­varps­þáttum sem sýndir voru á Íslandi fyrir fimm ára­tugum. Hvað hétu þeir þættir?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í frægri sögu eftir H.G.Wells, sem fyrst birt­ist 1897, er lýst inn­rás geim­vera á Jörðina og þær koma frá ... hvaða stað?

2.  Þeir Steve McQueen, Dustin Hoffman, Al Pacino, Jack Nicholson, Gene Hackman og James Caan höfn­uðu allir aðal­hlut­verk­inu í kvik­mynd einni sem frum­sýnd var 1977. Richard Dreyfus tók að lokum að sér hlut­verkið sem fól meðal ann­ars í sér að hitta fyrir geim­verur. Og varð frægð hans mikil. Hvaða bíó­mynd var þetta?

3.  Í hvaða bíó­mynda-bálki koma fyrir Jedíar svo­nefndir?

4.  Árið 1972 gerði sov­éski kvik­mynda­snill­ing­ur­inn Andrei Tar­kov­skí bíó­mynd sem fjall­aði um hóp geim­fara sem verða fyrir ein­kenni­legum áhrifum þegar þeir gista plánetu eina, sem hulin er vatni eða sjó. Hvað hét þessi bíó­mynd?

5.  Árið 2002 end­ur­gerði banda­ríski leik­stjór­inn Steven Soder­berg þessa mynd og þar lék eina skærasta film­stjarna Banda­ríkj­anna aðal­hlut­verkið, til­tölu­lega nýkomin frá því að lækna fólk í sjón­varps­þátt­unum ER. Hvaða stjarna var þetta?

6.  Árið 1996 varð afar vin­sæl kvik­mynd sem lýsti grimmi­legri inn­rás skugga­legra geim­vera á Jörðina. Will Smith og Bill Pullman léku þar hvað stærst hlut­verk og börð­ust af hörku gegn ill­þýð­inu utan úr geimnum. Og myndin hét ...?

7.  Mandalorian heitir sjón­varps­s­ería sem sýnd hefur verið síð­ustu miss­erin við all­miklar vin­sældir og ger­ist greini­lega í sömu ver­öld og ein allra vin­sælasta bíó­mynda­ser­ían utan úr geimnum. Hver er sú?

8.  Ill­ræmdir geim­búar sem nefndir eru Klin­gonar koma fyrir í annarri vís­inda­skáld­skap­ar­seríu, sem nefn­ist ...?

9.  Lalla, Tinkí Vinkí, Dipsí og Pó eru greini­lega geim­verur af ein­hveru tagi, þótt mein­laus séu og illt sé að segja til hvar þau búa. Einu nafni eru fjór­menn­ing­arnir kall­aðir ...?

10.  Árið 1959 var íslenskur kenn­ari á göngu á Esjunni þegar aðvíf­andi fljúg­andi diskur tók hann um borð og flutti hann til plánet­unnar Laí, þar sem mjög er fag­urt um að lit­ast og allt mjög and­legt. Frásögn af þessu var gefin út undir nafn­inu Ferðin til stjarn­anna og nefndi höf­undur sig Ingi Vítalín. Í raun var þetta skáld­saga og höf­und­ur­inn var í raun og veru einn þekkt­asti höf­undur Íslands í þá daga. Hann hét ...?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Í hvaða bíó­mynda­röð er þetta kvik­indi hér óvin­ur­inn?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Mars.

2.  Close Encounters of the Third Kind.

3.  Star Wars.

4.  Solaris.

5.  George Clooney.

6.  Independence Day.

7.  Star Wars.

8.  Star Trek.

9.  Stub­b­arnir, Tel­etubbies.

10.  Krist­mann Guð­munds­son.

***

Konan á efri mynd­inni kom fram í sjón­varps­þátt­unum FFH eða UFO.

Skrímslið á neðri mynd­inni er úr Alien-mynd­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár