571. spurningaþraut: Hver verður 19 ára þann 3. janúar 2022?

571. spurningaþraut: Hver verður 19 ára þann 3. janúar 2022?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er karl­mað­ur­inn lengst til hægri á mynd­inni? Og svo veiti ég lár­við­ar­stig fyrir að vita þar að auki hver konan er!

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða heiti er nú á dögum oft notað um norð­ur­strönd Breiða­fjarðar?

2.  Hvað heitir höf­undur met­sölu­bók­ar­innar Da Vinci-lyk­ill­inn?

3.  Shaquille O'Neal var á sínum tíma einn fremsti íþrótta­maður heims. En í hvaða grein?

4.  Hvaða höf­undur skrif­aði um alda­mótin 2000 nokkrar vin­sælar barna- og ung­linga­bækur eins og Þar lágu Danir í því (1998), Við viljum jól í júlí (1999), Barnapíu­bóf­inn, Búkolla og bók­aránið (2000) og Bíóbörn (2003), en sneri sér síðan að öðru?

5.  Lumière-bræð­urnir frönsku voru braut­ryðj­endur á hvaða sviði?

6.  Í hvaða landi er borgin Vancouver?

7.  Hvað er á milli Þistil­fjarðar og Bakka­flóa?

8.  Þjóð­hildur Jör­und­ar­dóttir er ekki síst fræg fyrir kirkju eina góða, sem hún lét reisa fyrr á tíð. Hvar reis kirkjan?

9.  Hvað heitir for­sæt­is­ráð­herra Indlands?

10.  Hver verður 19 ára þann 3. jan­úar 2022 eða í blá­byrjun næsta árs? Auðvitað munu þús­undir manna ná þessum áfanga um allan heim, en ég spyr um lang­fræg­ustu mann­eskj­una sem þá heldur upp á afmælið sitt.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þessi karl?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Barða­strönd. Raunin er sú að aðeins hluti strand­ar­innar heitir Barða­strönd, en algengt er orðið að nota nafnið yfir alla strönd­ina — enda mun ekk­ert eitt heiti hafa verið um hana frá fornu fari. En ég gef sem sagt rétt fyrir Barða­strönd.

2.  Dan Brown.

3.  Körfu­bolta.

4.  Yrsa Sig­urð­ar­dóttir.

5.  Kvik­mynda­gerð.

6.  Kanada.

7.  Langanes.

8.  Á Græn­landi.

9.  Modi.

10.  Greta Thunberg.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Karl­mað­ur­inn til hægri á efri mynd­inni er John F. Kennedy Banda­ríkja­for­seti.

Konan er Nína Krú­stjova, eig­in­kona þáver­andi Sov­ét­leið­toga. Krú­stjova dugar fyrir lár­við­ar­stig­inu.

Á neðri mynd­inni er Manfred von Richthofen þýskur flug­kappi úr fyrri heims­styrj­öld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár