569. spurningaþraut: „Upp, upp mín sál og allt mitt geð“

569. spurningaþraut: „Upp, upp mín sál og allt mitt geð“

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér er þekkt kona þegar hún var aðeins tíu ára gömul. Hver er þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða kvæða­bálkur hefst svo: „Upp, upp, mín sál og allt mitt geð, / upp mitt hjarta og rómur með“?

2.  Í hvaða bæj­ar­fé­lagi hefur íþrótta­fé­lagið Aft­ur­eld­ing aðsetur?

3.  Fyrir hvaða stjórn­mála­flokk situr Pawel Bartoszek í borg­ar­stjórn Reykja­víkur?

4.  Halldór Bald­urs­son heitir einn vin­sæl­asti mynd­list­ar­maður lands­ins og alt­ént koma verk hans dag­lega fyrir sjónir fleiri en flestra kollega hans. Hvar birt­ast þau?

5.  Í hvaða sögu kemur Hel­vít­is­gjáin við sögu?

6.  Í hvaða landi eru Renault-bílar upp­runnir? 

7.  Undir hvaða nafni er Clark Kent þekkt­astur?

8.  Hvað heitir höf­uð­borgin í Panama?

9.  Virginia Guiffre heitir kona tæp­lega fer­tug en stendur nú í mála­rekstri við frægð­ar­mann einn vegna atburða sem gerð­ust fyrir rúmum tutt­ugu árum. Hver er sá frægð­ar­maður?

10.  Fyr­ir­bæri eitt var einu sinni brúkað á Íslandi en var svo lagt niður fyrir rúmri hálfri öld eins og í meiri­hluta heims­ins. Þetta fyr­ir­bæri er þó enn við lýði á Bret­landseyjum og á Írlandi, sem og í nærri allri Eyjaálfu, svo sem í Ástralíu og á Nýja-Sjálandi. Í sunnan- og suð­aust­an­verðri Afríku er fyr­ir­bærið all­víða notað enn og sömu­leiðis á Indlandi. Það er og notað víðar í Asíu, þar á meðal í Japan og Tælandi. Það þekk­ist og í ein­staka löndum Mið- og Suður-Ameríku. Fyrir Íslend­inga tekur oft svolitla stund að venj­ast fyr­ir­bær­inu þegar þeir koma til landa þar sem það er notað, en það tekst þó jafnan stór­slysa­lítið. Hvaða fyri­bæri er þetta?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað vex hér á greinum?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Pass­íu­sálm­arnir.

2.  Mos­fellsbæ.

3.  Viðreisn.

4.  Í Frétta­blað­inu. Raunar einnig í Við­skipta­blað­inu.

5.  Ronju ræn­ingja­dóttur.

6.  Frakk­landi.

7.  Superman.

8.  Panama eða Panama­borg.

9.  Andrés prins.

10.  Vinstri umferð.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Diana Spencer, síðar prinsessa.

Á neðri mynd­inni má sjá avokadó, öðru nafni lárperur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár