Viðbúnaður í miðborginni vegna rafmagnsleysis og brunalyktar

Stór hluti mið­borg­ar­inn­ar er raf­magns­laus.

Viðbúnaður í miðborginni vegna rafmagnsleysis og brunalyktar
Úr miðbænum rétt í þessu Vegfarendur og starfsfólk fyrirtækja hópaðist saman til að fylgjast með atburðarásinni.

Slökkvibílar, lögreglubíll og sjúkrabíll hafa leitað að upptökum rafmagnsleysis og hugsanlegs bruna í miðborginni nú fyrir kvöldmatarleytið. Talið er að brunalykt sem liggur yfir Pósthússtræti og Austurvöll gæti tengst rafmagnsleysinu. Rafmagnslaust varð í stórum hluta miðborgarinnar og voru veitingastaðir, ásamt öðrum vinnustöðum, óstarfhæfir.

Samkvæmt upplýsingum frá Veitum eru upptökin fundin og má rekja rafmagsnsleysið til háspennubilunar í miðbæ Reykjavíkur. Unnið er að viðgerð og er vonast til þess að rafmagn verði komið aftur á innan klukkustundar, eða um klukkan sjö í kvöld. 

Eins er rafmagnslaust í Vesturbænum, þótt rafmagnsleysið nái ekki til allra heldur aðeins sumra húsa. Það er til að mynda ekki rafmagnslaust í Þjóðleikhúsinu þótt veitingastaðir séu margir í vanda. 

Í leiðbeiningum frá Veitum er fólki bent á að slökkva á rafmagnstækjum sem slökkva ekki á sér sjálf og geta valdið tjóni þegar rafmagn kemur á að nýju, en það á sérstaklega við um sjónvörp, eldavélar, mínútugrill og fleiri hitunartæki. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
5
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár