Magnús flutti félag úr skattaskjólinu Panama til Lúxemborgar

Fjár­festir­inn Magnús Ármann, sem var einn umsvifa­mesti íslenski athafna­mað­ur­inn í Panama­skjöl­unum, flutti eign­ar­halds­fé­lag sitt úr skatta­skjól­inu Panama til Lúx­em­borgar árið 2016. Hann breytti um nafn á félag­inu.

Magnús flutti félag úr skattaskjólinu Panama til Lúxemborgar

Fjár­festir­inn Magnús Ármann, sem í dag er einn af helstu eig­endum fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins Stoða, flutti eign­ar­halds­fé­lag sitt í skatta­skjól­inu Panama til Lúx­em­borgar árið 2016. Félag Magnúsar í Panama, Mexborough Holdings S.A., hafði þá breytt um nafn og orðið Clover Capital S.A. Þetta kemur fram í Pand­óru­skjöl­unum svoköll­uðu. 

Flutn­ing­ur­inn á félag­inu átti sér stað eftir að greint hafði verið frá stór­felldum við­skiptum Magnúsar og við­skipta­fé­laga hans, Sigurðar Bolla­sonar, í skatta­skjólum í Panama­skjöl­unum svoköll­uðu um sum­arið 2016. Við­skipti Magnúsar og Sigurðar voru það umfangs­mikil að ein­ungis feðgarnir Björgólfur Thor Björg­ólfs­son og Björgólfur Guð­munds­son voru tengdir fleiri félögum í Panama­skjöl­unum. Um var að ræða 23 félög í skatta­skjólum og aflands­svæðum í til­felli þeirra Sigurðar og Magnúsar. 

Magnús var umsvifa­mik­ill fjár­festir á Íslandi á árunum fyrir hrunið og keypti hluta­bréf í fjár­mála­fyr­ir­tækjum eins og Byr og Lands­bank­anum. Þekkt­astur er hann lík­lega fyrir að hafa keypt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Pandóruskjölin

Aflandshýsing í aflandsfélagi hýsir klám og nýnasistaáróður á Íslandi
AfhjúpunPandóruskjölin

Aflands­hýs­ing í aflands­fé­lagi hýsir klám og nýnas­ista­á­róður á Íslandi

Íslend­ingur búsettur í Taílandi er pott­ur­inn og pannan í rekstri umdeilds vef­hýs­ing­ar­fyr­ir­tækis sem gerir út á tján­ing­ar­frels­is­á­kvæði íslenskra laga. Klám, nýnas­ista­á­róður og nafn­laust níð er hýst á vegum fyr­ir­tæk­is­ins. „Ég hef ekk­ert að fela,“ segir mað­ur­inn, sem er einn þeirra sem afhjúpaðir eru í Pand­óru­skjöl­unum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár