Skelfileg uppgötvun í Frakklandi í síðustu viku: Bólugrafni morðinginn var lögreglumaður

Skelfileg uppgötvun í Frakklandi í síðustu viku: Bólugrafni morðinginn var lögreglumaður
Morð­ing­inn Francois Vérove Minna bar á því þegar hann elt­ist hve bólu­graf­inn hann var í framan

Heil­mikið hefur að und­an­förnu verið fjallað um enska morð­ingj­ann Wayne Couzens sem nam á brott Söru Everard, nauðg­aði henni og myrti hana síðan. Málið hefur vakið sér­stak­lega mikla athygli vegna þess að Couzens var starf­andi lög­reglu­maður þegar hann skipu­lagði og framdi morðið.

En nú síð­ustu daga hefur annar morð­ingi í ein­kenn­is­bún­ingi lög­reglu­manns líka vakið mikla athygli en sá framdi sín ódæði í Frakk­landi fyrir allt að 35 árum.

Það var um hádeg­is­bil þann 5. maí 1986 að Suzanne Bloch hringdi heim til sín úr vinn­unni til þess að aðgæta hvort 11 ára dóttir hennar, Cécile, hefði ekki örugg­lega skilað sér heim úr skól­anum og væri að fá sér eitt­hvað að borða.

Stúlka hverfur

Enginn svar­aði í íbúð Bloch-fjöl­skyld­unnar við Rue Petit í 19. hverfi í París.

Þá hringdi Suzanne í skóla dóttur sinnar og var þá sagt að hún hefði alls ekki mætt í skól­ann um morg­un­inn.

Cécile Blochvar aðeins 11 ára þegar hún var svipt líf­inu.

Strax var ljóst að eitt­hvað alvar­legt hlaut að hafa hent stúlk­una. For­eldr­arnir höfðu kvatt hana um morg­un­inn og haldið til vinnu, og nokkrum mín­útum eftir að þau fóru átti hún að taka lyft­una niður á neðstu hæð og halda svo gang­andi í skól­ann þar skammt frá.

Síðar þann sama dag fann hús­vörður lík Cécile litlu Bloch falið undir gólf­teppi í kjall­ar­anum undir hús­inu við Rue Petit.

Það var hálf­nakið og illa leikið. Stúlkunni hafði verið nauðgað og síðan hafði hún verið bæði kyrkt og stungin hvað eftir annað.

Málið vakti mikla athygli í París en ekki fannst morð­ing­inn. 

Þó varð fljótt til nokkuð nákvæm lýs­ing af honum. 

Foreldrarnir sáu morðingjann

Það kom nefni­lega upp úr dúrnum að hávax­inn, bólu­graf­inn karl­maður á þrí­tugs­aldri hafði haldið til við lyft­una í hús­inu í næstum klukku­tíma þennan morgun. Bróðir Cécile hafði meira að segja skipst á orðum við hann þegar hann fór í skól­ann þá um morg­un­inn, og það vakti athygli bróð­ur­ins hve yfir­máta kurt­eis mað­ur­inn var.

For­eldrar Cécile höfðu líka veitt mann­inum athygli þegar þau fóru til vinnu.

Hann hafði ber­sýni­lega verið að bíða eftir heppi­legu fórn­ar­lambi, eða kannski var hann bein­línis að bíða eftir Cécile. Kannski hafði hann njósnað um Bloch-fjöl­skyld­una lengi.

En þrátt fyrir lýs­ing­una á þessum mjög bólu­grafna manni og þrátt fyrir að DNA hans hefði fund­ist á líki Cécile náð­ist ekki að góma mann­inn.

Næstu árin voru fleiri glæpir framdir í og við París sem smátt og smátt voru líka tengdir „hinum bólu­grafna“ eð „Le Grêlé“ eins og rann­sókn­ar­menn í París fóru að kalla hann sín á milli.

Þar var bæði um að ræða nauðg­anir og morð.

Kom fram sem lögreglumaður

Brátt kom í ljós að Le Grêlé virt­ist iðu­lega koma fram sem lög­reglu­maður þegar hann framdi glæpi sína og virt­ist þekkja vel til vinnu­bragða lög­reglu­manna. Einu sinni lokk­aði hann unga stúlku upp í bíl sinn með því að veifa lög­reglu­skír­teini.

Að minnsta kosti þrisvar vann hann traust ungra stúlkna og kvenna með því að segj­ast vera lög­reglu­maður en nauðg­aði þeim síðan. Hann gekk greini­lega gjarnan með hand­járn á sér og kunni orð­færi lög­reglu­manna, og sömu­leiðis hand­tök þeirra.

Hann framdi að minnsta kosti þrjú morð eftir að hann drap Cécile Bloch.

Árið 1987 drap hann 21 árs gamla þýska au pair-stúlku eftir að hafa áður drepið vinnu­veit­enda hennar, sem hann hafði bundið eftir kúnst­ar­innar reglum lög­regl­unnar.

Árið 1994 drap hann svo 19 ára stúlku eftir að hafa nauðgað henni.  

Gufaði upp í aldarfjórðung

Þrátt fyrir lýs­ingar, teikn­ingar byggðar á fram­burðum vitna, DNA á vett­vangi ýmissa glæpa hans og upp­lýs­inga um mögu­legan bak­grunn Le Grêlé í löregl­unni, þá tókst ekki að finna hann.

Og svo virt­ist hann „setj­ast í helgan stein“ og í ald­ar­fjórð­ung frétt­ist ekki meira af hinum bólu­grafna nauð­gara og morð­ingja.

Nú í haust var hins vegar ákveðið innan frönsku lög­regl­unnar að gera gang­skör að því að upp­lýsa málið. Þá voru send bréf til 750 karla sem höfðu gegnt störfum í frönsku her­lög­regl­unni þau ár sem glæpa­hrina Le Grêlé stóð.

Þeir voru beðnir um að láta í té DNA-sýni til þess að hægt væri að úti­loka þá frá grun­semdum á ónefndum gömlum glæpum.

Meðal þeirra sem fengu bréf var 59 ára gam­all bólu­graf­inn fyrrum her­lög­reglu­maður sem síðar hafði gengið til liðs við almennu lög­regl­una en var nú kom­inn á eft­ir­laun. Hann bjó ásamt eig­in­konu í fal­legum smábæ við Mið­jarð­ar­hafs­strönd Frakk­lands og hét François Vérove.

Þeim hjónum hafði orðið tveggja barna auðið, voru komin með barna­börn og eng­inn vissi annað en hann væri í alla staði umhyggju­samur og ágætur fjöl­skyldu­maður. Enda mun sú hafa verið raunin.

Játaði á sig morðin

Vérove fékk bréf þann 24. sept­em­ber og átti að gefa sig fram og veita DNA-sýnið fimm dögum síðar. Í stað­inn lét hann sig hverfa af heim­il­inu og leigði sér litla íbúð ekki all­langt frá. Þar hélt hann til í nokkra daga en svipti sig lífi með því að taka of stóran skammt af eit­ur­lyfjum þann 29. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Vérovemun hafa látið að sér kveða í bæj­ar­málapóli­tík­inni í smá­bænum við Mið­jarð­ar­hafið þar sem hann bjó eftir að hafa sest í helgan stein.

Hann skildi eftir sig bréf þar sem hann ját­aði að vera Le Grêlé, morð­ingi og nauð­gari, en mun ekki hafa farið út í mikil smá­at­riði í játn­ingum sínum. Hann sagði þar eitt­hvað á þá leið að hann hefði „verið á vondum stað“ en hefði síðan náð valdi á sér.

Franska lög­reglan hefur nú þegar gengið úr skugga um að DNA hins bólu­grafna morð­ingja ann­ars vegar og François Vérove hins vegar passa alveg saman.

Hann var því morð­ingi Cécile litlu Bloch og hinna þrigga sem Le Grêlé myrti.

Nú tekur hins vegar við hjá frönsku lög­regl­unni að rann­saka hvernig Vérove komst undan svo lengi og hvort hann hafi framið fleiri morð og fleiri nauðg­anir en þegar hefur tek­ist að heim­færa upp á Le Grêlé.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
6
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár