Kvenraddir í klikkuðu ástandi

Herdís Stef­ánsdóttir samdi tónlistina við bandarísku sjónvarps­þátta­röðina Y: The Last Man. Hljóð­heimurinn byggir á söng kvenna­kórs á Akureyri. Hún segir að bransinn sé hark, erfitt sé að komast inn og er þakklát fyrir að geta valið úr verkefnum. Nú vinnur hún að tónlist fyrir íslensku þátta­röðina Verbúðin.

„Þetta er bandarísk þáttaröð sem er byggð á myndasögu sem heitir „Y: The Last Man“ og fjallar um vírus sem drepur allar manneskjur og allar lifandi verur sem eru með y-litninginn nema einn mann sem er síðasti maðurinn. Án þess að ég vilji gefa of mikið upp eða skemma fyrir áhorf­endum þá get ég sagt að þetta sé heimur án laga og reglna en það er líka fullt af kómedíu og léttleika í þessari seríu þrátt fyrir að hún sé líka dimm og þung og bara klikkað ástand. Innviðir samfélagsins eru að hrynja og helmingur mannkyns er dáinn. Þetta er svolítið stór heimur og marglaga þannig að ég þurfti að búa til nokkra ólíka heima varðandi tónlistina.“

Herdís Stef­ánsdóttir tónskáld talar um að í dag búi mannkynið í rauninni ekki við svo ólíkar aðstæður hvað varðar nýja kórónu­vírusinn sem veldur Covid-19. „Það er mikill realismi í seríunni þannig að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár