„Auðvaldið verður aldrei okkar samstarfsmaður“

Katrín Bald­urs­dóttir, odd­viti Sós­í­alista­flokks­ins í Reykja­vík Suður, segir að Sós­í­alista­flokk­ur­inn sé búinn að reikna út hversu miklar tekjur hann þarf til þess að standa við lof­orð sín og hvernig hann ætlar að nálg­ast slíkar tekjur en vill hins vegar ekki gefa upp hver upp­hæðin er, það væri „fárán­legt“. Hún segir Sós­í­alista­flokk­inn ætla að byggja upp sinn eigin fjöl­miðil, leggja af styrki til fjöl­miðla í gegnum rit­stjórnir og styrkja frekar blaða­menn í að fjalla um það sem flokknum finnst „þess virði“. Þá ætlar flokk­ur­inn sér einnig að setja á fót and-spill­inga­stofnun.

Katrín Bald­urs­dóttir, odd­viti Sós­í­alista­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi Suður, segir fylgi Sós­í­alista­flokks­ins gefa til kynna að kjós­endur séu að kalla eftir sós­í­al­isma. Sömu­leiðis segir hún að ef Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og „nýfrjáls­hyggju hægri flokk­arnir kom­ist að“ muni þeir boða nið­ur­skurð. Að hennar mati telst Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn til „auð­valds­ins“ og raunar Mið­flokk­ur­inn og Viðreisn líka. Af þeim sökum úti­lokar Sós­í­alista­flokk­ur­inn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með þeim flokkum. 

„Auð­valdið verður aldrei okkar sam­starfs­maður,“ segir Katrín í við­tali í Kosn­inga­stund­inni. 

Sósíalisminn kæfður í kalda stríðinu

Að sögn Katrínar hefur sós­í­al­ismi ekki verið upp á borðum í nútíma stjórn­málum vegna þess að hann hafði verið „kæfður í kalda stríð­inu“. „Hann var bara kæfður í kalda stríð­inu. Það var bara út af þessum kalda stríðs árum þegar menn litu á austrið sem algjöran fjand­mann... allt í einu mátti ekki segja orðið sós­í­al­ismi.“

Að mati Katrín og flokks­manna hennar til­heyra allir þeir flokkar sem nú sitja á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningastundin

Guðmundur Ingi: Atkvæði greitt VG sé atkvæði greitt gegn hægri stjórn
FréttirKosningastundin

Guð­mundur Ingi: Atkvæði greitt VG sé atkvæði greitt gegn hægri stjórn

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverf­is­ráð­herra gengur sáttur frá borði þótt Vinstri græn hafi ekki náð mik­il­vægum mál­efnum í gegn. Helst sér hann eftir mið­há­lend­is­þjóð­garð­inum en mun halda bar­átt­unni áfram og segir lofts­lags­málin vera stærstu verk­efnin á kom­andi kjör­tíma­bili. Þar þarf að grípa til aðgerða í atvinnu­líf­inu og friða bæði hluta af landi og hafi.
Kristrún: „Það er ekki gott að hér verði einhvers konar samfélagsrof“
ViðtalKosningastundin

Kristrún: „Það er ekki gott að hér verði ein­hvers konar sam­fé­lags­rof“

Kristrún Frosta­dóttir, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík suður, segir að hún hafi alltaf verið jafn­að­ar­maður í hjarta sínu þó hún hafi starfað fyrir Við­skipta­ráð og fjár­mála­fyr­ir­tæki. Hún segir að mik­il­vægt sé að efna­mikið fólk greiði meira til sam­fé­lags­ins og rök­styður stór­eigna­skatta sem rétt­læt­is­mál og góða hag­stjórn.
Bjarni Benediktsson sem forsætisráðherra er fyrsta tilboð Sjálfstæðisflokksins
FréttirKosningastundin

Bjarni Bene­dikts­son sem for­sæt­is­ráð­herra er fyrsta til­boð Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Birgir Ármans­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, svarar fyrir stefnu og feril flokks­ins í Kosn­inga­stund­inni. Hann ver ráð­herra flokks­ins, heitir áherslu á skatta­lækk­anir og segir kosn­inga­lof­orðin fjár­magn­ast með hag­vexti. Flokk­ur­inn mun gera upp­haf­lega kröfu um að for­mað­ur­inn Bjarni Bene­dikts­son verði for­sæt­is­ráð­herra í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár