508. spurningaþraut: Hvar eru algengustu nöfnin Junior, Blessing og svo Precious og Princess?

508. spurningaþraut: Hvar eru algengustu nöfnin Junior, Blessing og svo Precious og Princess?

Fyrri auka­spurn­ing:

Sjáið merkið hér að ofan. Þetta er vöru­merki fyrir ... hvað?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Samkvæmt Wikipedíu voru þrjú algeng­ustu skírn­ar­nöfnin fyrir nýfædda pilta í Afr­íku­ríki einu árið 2015 nöfnin Junior, Blessing og Gift. Þrjú algeng­ustu stúlkna­nöfnin voru hins vegar Precious, Princess og Angel. Hvaða land skyldi þetta vera?

2.  Hvaða reiki­stjarna kemur næst Jörðinni á ferðum sínum umhverfis sól­ina?

3.  Síðasti kóng­ur­inn í hvaða ríki kall­að­ist Viktor Emanúel 3.?

4.  Árið 1918 var stofnað nýtt ríki í Evrópu sem hét í fyrstu Kon­ungs­ríki Serba, Króata og Slóvena. En fljót­lega var þó skipt um nafn á rík­inu og það var þá nefnt ... hvað?

5.  Hvað þýðir það nafn ann­ars?

6.  Hver er eini Íslend­ing­ur­inn sem fengið Ósk­arsverð­laun?  

7.  Hvað heitir yngsta barn Elísa­betar Breta­drottn­ingar?

8.  „Loksins, loks­ins,“ er upp­hafið á frægum rit­dómi um nýja íslenska skáld­sögu. Hver var höf­undur skáld­sög­unnar?

9.  En hver skrif­aði þennan rit­dóm? Lár­við­ar­stig er svo í boði að auki fyrir að vita í hvaða tíma­riti rit­dóm­ur­inn með þessum frægu orðum birt­ist.

10.  „Fyrir þér er einn dagur sem þús­und ár / og þús­und ár dagur, ei meir: / eitt eilífðar smá­blóm með titr­andi tár, / sem ...“ Sem hvað?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er karl­inn sem hér heldur svo stoltur á nýfæddum syni?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Suður-Afríka.

2.  Venus.

3.  Ítalíu.

4.  Júgóslavía.

5.  Suður-Slavía.

6.  Hildur Guðna­dóttir.  

7.  Ját­varður.

8.  Halldór Laxness.

9.  Kristján Alberts­son. Tíma­ritið hét Vaka.

10.  „... til­biður guð sinn og deyr.“

***

Svör við auka­spurn­ingum.

Á efri mynd­inni er vöru­merki eða lógó fyrir bíla af gerð­inni Ford Mustang.

Á neðri mynd­inni má aftur á móti sjá portú­galskan fót­bolta­þjálf­ara.

Hann hefur gert garð­inn frægan með ýmsum helstu stór­liðum heims­ins, svo sem Chelsea, Real Madrid, Inter Milan og Manchester United.

Hann er umdeildur nokkuð, eins og kunn­ugt er, en heitir Jose Mourinho.

***

Hér eru svo fyrir neðan hlekkir á fyrri þrautir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár