507. spurningaþraut: Höfuðborg hvaða veldis var Cusco?

507. spurningaþraut: Höfuðborg hvaða veldis var Cusco?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað fugl má sjá á mynd­inni hér að ofan? Myndina tók Hrafn Ósk­ars­son.

***

1.  „Hér er vá á ferðum, við skulum láta af þessu.“ Hér kæmi eitt orð að gagni í báðum setn­ing­ar­hlutum — í stað orða sem þarna standa. Hvaða orð er það sem hefur svo ólíka merk­ingu?

2.  Hvað hét ungi lær­ling­ur­inn sem Bill Clinton Banda­ríkja­for­seti sótt­ist eftir í Hvíta hús­inu?

3.  En hvað hét sak­sókn­ar­inn sem rann­sak­aði mál Clintons árum saman og þar á meðal ofan­greint sam­band hans við ungu kon­una eða lær­ling­inn?

4.  Cusco heitir borg ein þar sem búa nú tæp­lega 500.000 sálir. En í byrjun 15. aldar var Cusco höf­uð­borg í vold­ugu ríki. Hvaða ríki var það?

5.  Í hvaða skáld­sögu kemur Jón Hregg­viðs­son mjög við sögu?

6.  Hver er útbreiddasta skyndi­bita­keðja í heimi? Sem sagt með flesta útsölu­staði.

7.  Á bleikum nátt­kjólum — hver eða hverjir gáfu út þá plötu? Svarið þarf að vera nákvæmt.

8.  Hvernig er fjórða boð­orðið?

9.  Leikari einn, sem fyrr á árum kom ekki síst fram í ein­leikjum og eins manns sýn­ingum af ýmsu tagi, og rak sitt eigin leik­hús, en starf­aði svo lengi hjá útvarp­inu og gerði þá frægan útvarps­þátt um vist sína í frum­bernsku á vöggu­stofu, en er nú kom­inn í fram­boð til þings fyrir Sam­fylk­ing­una, hvað heitir þessi leik­ari?

10.  Út í hvaða vík, vog, fjörð eða flóa fellur Lag­ar­fljót?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er konan hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Hætta.

2.  Monica Lewinsky.

3.  Starr.

4.  Ríki Inka í Perú.

5.  Íslands­klukk­unni.

6.  Subway.

7.  Megas og Spilverk þjóð­anna.

8.  „Heiðra skaltu föður þinn og móður.“

9.  Viðar Egg­erts­son.

10.  Hér­aðs­flóa.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er himbrimi.

Á neðri mynd­inni er Marilyn Monroe.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár