503. spurningaþraut: Þóra Margrét, Gunnar og heilagur Basil

503. spurningaþraut: Þóra Margrét, Gunnar og heilagur Basil

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir per­sónan sem kunn sænsk leik­kona túlkar á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Þóra Margrét Bald­vins­dóttir heitir kona nokkur. Hún hefur feng­ist við sitt af hverju um ævina en er þó óneit­an­lega kunn­ust fyrir það hver eig­in­maður hennar er. Og hann er ...?

2.  Gunnar Sig­valda­son er í svip­aðri stöðu. Hann hefur líka feng­ist við hitt og þetta en er kunn­astur fyrir að vera eig­in­maður ...?

3.  Hvar er dóm­kirkja heilags Basils?

4.  „Þegar kviknar á deg­inum og í líf­inu ljós, / þegar myrkrið hörfar frá mér, / þá er eitt­hvað sem hrífur mig líkt og útsprungin rós, / þá vil ég ...“ Ja, þá vil ég hvað?

5.  Hvaða hljóm­sveit flutti það lag sem byrjar á þann hátt sem hér að ofan greinir?

6.  Í hvaða borg eru frið­ar­verð­laun Nóbels afhent árlega?

7.  Hvað er kvaðrat­rót?

8.  Á ólymp­íu­leik­unum í Tókíó um í sumar setti Elaine Thompson-Herah ólymp­íu­met í 100 metra hlaupi kvenna. Svo skemmti­lega vill til að sá sem á ólymp­íu­metið í 100 metra hlaupi er frá sama landi og Thompson-Herah. Hvaða land er það?

9.  Hvaða bíó­mynd hefur hlotið mesta aðsókn á alþjóða­vett­vangi það sem af er árinu 2021?

10.  Kvik­mynda­gerð­ar­maður sem leik­stýrt hefur tveim bíó­myndum, þar á meðal Sveita­brúð­kaupi, en er þó þekkt­ari sem klipp­ari — bæði á Íslandi og ekki síður á alþjóða­vett­vangi (þar á meðal fyrir að hafa klippt mynd­ina Eternal Sunshine of the Spotless Mind), hvað heitir þessi kvik­mynda­gerð­ar­maður?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Skjá­skotið hér að neðan er úr víð­kunnu inn­gangs­at­riði sjón­varps­þátt­anna Sopranos þar sem mafíós­inn Tony Soprano keyrir frá New York og heim til sín í New Jersey. Hér er kynnt til sögu leik­konan Lorraine Bracco. Fyrstu ár sjón­varps­þátt­anna hafði inn­gangs­at­riðið verið allt öðru­vísi þegar Bracco var kynnt til sögu, en því var sem sagt breytt. Hvernig?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Bjarni Bene­dikts­son.

2.  Katrínar Jak­obs­dóttur.

3.  Í Moskvu.

Dóm­kirkjan hans Basilser á Rauða torg­inu.

4.  „... vera hjá þér.“ 

5.  Sálin hans Jóns míns. (Sjá hér!)

6.  Osló.

7.  Tala sem er marg­földuð með sjálfri sér. Ég veit ekki hvort þetta dugar stræð­fræði­lega en þetta dugar hér! Í raun og veru dugar að nefna „marg­földuð með sjálfri sér“.

8.  Jamaíka.

9.  Black Widow, Svarta ekkjan.

10.  Valdís Ósk­ars­dóttir.  

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Persónan heitir Lisbet Salander.

Tví­bura­t­urn­arnir World Trade Center voru klipptir út úr kynn­ing­ar­at­rið­inu eftir að þeir voru felldir með hryðu­verki þann 11. sept­em­ber 2001. Fyrstu ár þáttar­að­ar­innar hafði Tony Soprano séð þá augna­blik í bak­sýn­is­spegl­inum á leið sinni heim.

Og sjá betur hér:

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár