502. spurningaþraut: Lárviðarstig í boði fyrir erkihertogafrú

Fyrri auka­spurning:

Á myndinni hér að ofan má sjá skrift­letur sem þjóð ein tók upp um það bil árið 405 eftir Krist. Málfræðingur, guðfræðingur og tónskáld að nafni Mesrop Mashtots bjó það til, en talað tungumál þessarar þjóðar var miklu eldra. Hver var þjóðin?

***

Aðal­spurningar:

1.  Hvað hét karl­maðurinn sem sat lengi í fangelsi á Robben-eyju en endaði sem forseti í landi sínu?

2.  En hvað hét erki­hertoginn sem myrtur var árið 1914 og varð kveikjan að fyrri heims­styrjöld? Þið megi sæma ykkur lárviðar­stigi ef þið vitið líka hvað konan hans hét, sem einnig var drepin.

3.  Hvað hét borgin þar sem þau hjón voru drepin?

4.  Í hvaða landi heitir ríkis­útvarpið BBC?

5.  Hvar takast Capulet og Montagu-ættirnar aðallega á?

6.  Í hvaða bæ hefur körfubolta­félagið Snæfell aðsetur?

7.  Hvaða reikistjarna hefur meira áberandi hringa úr ís og ryki utan um sig en aðrar?

8.  Hvaða þrjú dýr koma við sögu litlu, gulu hænunnar? Nefna verður öll þrjú.

9.  „Amerískur fótbolti“ er í raun allt önnur íþrótt en hefð­bundinn evrópskur fótbolti. Hvaða orð nota Bandaríkja­menn yfir hina klassísku evrópsku gerð, sem spiluð er um allan heim?

10.  Hversu margir eru í hvoru liði í amerískum fótbolta?

***

Seinni auka­spurning:

Í hvaða borg er myndin hér að neðan tekin?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Mandela.

2.  Franz Ferdinand. Konan hans hét Soffía.

3.  Sarajevo.

4.  Bretlandi.

5.  Í leikriti Shakespeares, Rómeo og Júlíu. Sumir kynnu að vilja svara Veróna og ég hef ákveðið að gefa 3/4 úr stigi fyrir það. Ekki þó aukalega!

6.  Stykkis­hólmi.

7.  Satúrnus.

8.  Hundur, köttur og svín.

9.    Soccer.

10.  Ellefu.

***

Svör við auka­spurningum:

Armenar tóku upp þetta skrift­letur um 405.

Borgin er Washington vestanhafs. Þið hefðuð mátt þekkja hana af Washington-minnis­merkinu sem sést í lengst til hægri.

***

Lítið svo á hlekkina hér að neðan!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár